Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2009, Page 54

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2009, Page 54
KRISTÍN GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR 54 árunum orðið eitt helsta tákn borgarinnar. Nefndir veggir verða sífellt hærri, lengri og margfaldari, en þar sem borgin stendur við sjó er ekki hlaupið að því að verja ímynduð landamæri í hafinu, en landamæravegg- urinn nær eigi að síður á haf út.36 Höfundur heldur áfram á þessum fárán- legu nótum og segir að einhverju sinni hafi fundist dauður hvalur við málmvegginn; hann hafi líklegast ákveðið að gefa upp öndina Mexíkómegin þar sem börn og fullorðnir voru að baða sig, en Bandaríkjamegin var hins vegar ekki sálu að sjá, aðeins máva sem flögruðu um og skilti sem varaði við mengun og bannaði allt sund. Fáránleikinn endurspeglar „samræður sam- bandsleysisins“ sem hafa gert Bandaríkjahliðina mannlausa, en jafnframt má sjá síðustu orðin sem saknaðarfulla tilvísun í fyrri tíma, áður en járnveggur- inn kom til, þegar fjölskyldur, sem bjuggu beggja vegna markanna, samein- uðust í frístundum sínum og vörðu síðdeginu saman á ströndinni. Eins og svo oft snýr Crosthwaite viðteknum gildum og túlkun á hvolf. Í smásögunni „Where have you gone, juan escutia?“ (Hvert fórstu, juan escutia?)37 verður landamæraveggurinn við Tijuana að varnarvegg gegn innrásinni að norðan. Veggurinn sem var reistur til að koma í veg fyrir ólöglegar ferðir inn í Bandaríkin fær nýtt gildi. Tijuana ásamt varnar- veggnum ver nú staðfastlega menningu Mexíkó og veitir stöðugt viðnám gegn innrás nágrannans úr norðri. Hinni þjóðernislegu orðræðu um Juan Escutia, sem er táknmynd fyrir hinn sanna Mexíkómann, er snúið við. Juan Escutia var einn af svonefndum drengjum hetjudáðanna, síðustu mönnunum sem reyndu að verja Chapultepec-kastalann í Mexíkóborg við innrás Bandaríkjamanna 1847. Hann sveipaði sig fána landsins og stökk fram af klettabrún kastalans í stað þess að lenda í höndum innrásarmanna. Tijuana og aðrar borgir landamæranna, sem samkvæmt viðtekinni orðræðu „úr suðri“ eru menningarlega „mengaðar“, verða í „Where have you gone, juan escutia?“ borgir sem þurfa stöðugt að veita viðnám til að viðhalda mexí- kanskri menningu; þær sýna þrautseigju og rammmexíkanskan anda. Líkt og hjá Crosthwaite eru mörkin sjálf í forgrunni í verkum Rosario Sanmiguel. Henni hefur tekist einkar vel að draga upp sannfærandi mynd 36 Operation Gatekeeper eða Hliðvarðaraðgerðinni var hrint af stað í Tijuana um miðj an tíunda áratuginn. Þá voru fyrstu landamæraveggirnir reistir, þeir eru þriggja til fjögurra metra háir. Síðan hafa fleiri veggir verið reistir á sama stað og eru þeir nú ýmist tvöfaldir eða þrefaldir. 37 Lágstafir eru höfundar. Athygli vekur að titill sögunnar er á ensku. Luis Humberto Crosthwaite, Marcela y el rey: al fin juntos, Zacatecas: J. Boldó i Climent, Uni- versidad Autónoma de Zacatecas, 1988, bls. 32.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.