Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2009, Page 75

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2009, Page 75
75 Guðni Elísson Efahyggja og afneitun Ábyrg loftslagsumræða í fjölmiðlafári samtímans Lífið í nýlendum Spánverja setti konum enn þrengri skorður en á Spáni og fátt stóð þeim til boða sem ekki höfðu áhuga á heimilishaldi og fjölskyldu- lífi. Klaustrin voru þá eina úrræðið og helst þar gátu konur starfað og menntað sig, frjálsar undan valdi eiginmanna. Það var því engin tilviljun að Sor Juana tók þessa ákvörðun. Klausturlífið hafði þó miklar takmarkanir í för með sér. Konur innan kirkjunnar höfðu lítil völd og hlutverk nunna í nýlendunum var „að vera þegnar spænskrar kirkju og konungdæmis; vera fulltrúar kirkjunnar í trú- boði meðal heiðingja; gæta rétttrúnaðar og tryggja félagslega virðingu“.28 Klaustrin gáfu konum ákveðið sjálfsforræði og samfélag en um leið endur- spegluðu þau þjóðfélagsgerð sem kúgaði konur og voru því ekki sá griða- staður sem halda mætti.29 Ekki var ætlast til að nunnur blönduðu sér í rökræður um guðfræðileg álitaefni en eins og Octavio Paz bendir á var „guðfræðin gríma stjórnmálanna“30 á 17. öld og langt í að konur fengju að taka þátt í stjórnmálum. Í predikunum fór fram umræða um stjórnmál og sá miðill var ekki ætlaður konum. Eins og Sor Juana greinir frá í Svarinu var þekkingarleitin hennar stærsta ástríða og svo áköf að á barnsaldri neitaði hún sér um góðgæti eins og ost af því að hún hafði heyrt að það gerði fólk heimskt: „[...] löngun mín til að læra var sterkari en löngunin til að borða, svo máttug sem hún nú er hjá börnum.“31 Í Svarinu segir hún frá því þegar hún grátbað móður sína um að svindla sér inn í háskóla, í karlmannsfötum.32 Þótt ósk hennar um að komast í háskóla rættist ekki aflaði hún sér menntunar á sviði sígildrar mælskulistar, lögfræði, guðfræði og bókmennta en saknaði þess þó að fá ekki tækifæri til að vera hluti af því akademíska lífi sem karlmenn einir höfðu aðgang að. Sor Juana var afkastamikið og fjölhæft skáld sem skrifaði gamansöm leikrit og alvarleg, söngtexta og kirkjulega texta en það eru ástarljóðin, ritstj. og þýðing Electra Arenal og Amanda Powell, New York: The Feminist Press, 1994, bls. 50. 28 Electra Arenal og Amanda Powell, „Introduction“, The Answer/La respuesta, bls. 6. 29 Stephanie Merrim (ritstj.), Feminist perspectives on Sor Juana Inés de la Cruz, Detroit: Wayne State University Press, 1999, bls. 20. 30 Octavio Paz, Sor Juana Inéz de la Cruz o Las Trampas de la Fe, bls. 83. 31 Sor Juana Inés de la Cruz, The Answer/La respuesta, bls. 48. 32 Það var ekki fyrr en 60 árum eftir dauða Sor Juönu, árið 1755, að stofnaður var framhaldsskóli fyrir konur í Mexíkó en þá hafði háskólanám verið í boði þar, fyrir karlmenn, í rúm 200 ár; Luisa Ballesteros Rosas, La escritora en la sociedad latino- americana, Santiago de Cali: Editional Universidad del Valle, 1997, bls. 12. SOR JUANA SVARAR FYRIR SIG
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.