Skagfirðingabók - 01.01.1980, Blaðsíða 27
EINAR BALDVIN GUÐMUNDSSON Á HRAUNUM
var óskorin, en annars náðist hún öll óskemmd. Var hún öll
gefin þeim, er til vildu vinna að skera hana af beinunum, en
þar að auki var mikið af henni notað til heimilisins og handa
hvalfjörugestum. En rengi og spik var selt mjög ódýrt, eða 2—5
aura hvert hálft kg, og mun þó ekki hafa verið smjörvegið til
kaupendanna. Flestöll bein úr hvölunum voru brytjuð niður
og brædd til lýsis.
Þetta vor voru mikil bjargarvandræði víða norðanlands. Komu
því margir lítt nestaðir á hvalfjöruna, enda var hvalmegra, auk
rengis og spiks, soðin þar við sjóinn í 3 stórum lifrarpottum,
nótt og dag, í marga sólarhringa. Við matreiðslu þessa voru
alltaf 1—2 karlmenn og 2 kvenmenn. Var víst lítið etið meðan
á hvalskurðinum stóð, nema hvalur, bæði magur og feitur.
Fregnin um þessa hvalreka barst fljótt víðs vegar, og söfnuð-
ust á hvalfjöruna menn úr ýmsum sveitum til hvalkaupa, svo
sem úr Olafsfirði, Héðinsfirði, Siglufirði, af Dölum og úr Svarf-
aðardal, og úr flestum byggðarlögum Skagafjarðarsýslu. Var öll-
um, sem þangað komu, veittur ókeypis soðinn hvalur, og má
nærri geta, að mikið hefur verið etið af hvalnum svona alveg
glænýjum. Hefi eg aldrei heyrt, að nokkur maður hafi farið
óánægður af þessari hvalfjöru, og mun það sjaldgæft. Sýnir þetta
ásamt mörgu fleiru, hve Einar hefir verið vinsæll og sanngjarn
í öllum viðskipmm.
I sambandi við þetta hvaladráp má geta þess, að á meðan á
hvalskurðinum stóð, kom maður einn, meðal annarra, innan úr
Skagafirði, á hvalfjöruna. Maður þessi hét Jóhann Þorsteinsson.
Hann kom með mislingana að Hraunum, enda kom hann nær
því beina leið sunnan úr Reykjavík; en þegar hann fór þaðan,
voru mislingarnir nýkomnir þangað. Lagðist hann strax og Iá
þungt haldinn á Hraunum á aðra viku. Var læknir sóttur til
Siglufjarðar, því að enginn þekkti veiki þessa; var þess og heldur
engin von, þar sem mislingar höfðu ekki gengið yfir landið síð-
an 1846. Veiktist síðan hver af öðrum á Hraunum og breiddist
svo veikin út þaðan á hvert heimili sveitarinnar.
25