Skagfirðingabók - 01.01.1982, Page 23
SÝSLULÝSING YFIR SKAGAFJARÐARSÝSLU
um Norðurárdal, út Blönduhlíð að Miklabæ, yfir Héraðsvötn,
um Vallhólm, upp að Víðimýri, vestur Vatnsskarð og endar við
Arnarvatnslæk.
B. Vegurinn austan Vatna liggur frá Miklabæ út Blönduhlíð,
Viðvíkursveit, Oslandshlíð og Höfðaströnd til Grafaróss og
Hofsóss, þaðan um Sléttuhlíð og Fljót, út í Siglufjarðarskarð til
Siglufjarðar í Eyjafjarðarsýslu.
C. Vegurinn vestan Vatna liggur um Vallhólm, Langholt, Sæ-
mundarhlíð og Borgarsveit til Sauðárkróks, þaðan um Göngu-
skörð út Laxárdalsheiði, yfir Laxárdal vestur á Hrafnagilsfjall til
Skagastrandar í Húnavatnssýslu.
D. Vegurinn um Hegranesið liggur frá Sauðárkrók, austur yfir
Héraðsvötn á Osunum, og kemur á veginn austan Vatna hjá
Lóni í Viðvíkursveit.
E. Vegurinn yfir Heljardalsheiði liggur milli Kolbeinsdals og
Svarfaðardals í Eyjafjarðarsýslu.
Auk þeirra vega, er nú eru taldir, eru ýmsar leiðir farnar til
næstu sýslna:
Ur Norðurárdal liggur vegur yfir Hörgárdalsheiði til Hörg-
árdals íEyjafjarðarsýslu. Þangað liggur og vegur úr Hjaltadal yfir
Hjaltadalsheiði. Ur Deildardal er stundum farinn Deildardals-
jökull yfir í Svarfaðardal.
Ur Víðidal á Staðarfjöllum er farið Litla-Vatnsskarð vestur á
Laxárdal í Húnavatnssýslu. Af Gönguskörðum liggur leið um
Kolugafjall vestur í Norðurárdal og Hallárdal.
Ur sýslunni liggja 2 fjallvegir til Sunnlendingafjórðungs:
Kjalvegur suður í Biskupstungur í Árnessýslu og Stórisandur til
Borgarfjarðar.
2. grein.
Af þjóðvegagjaldinu hefur að tiltölu mestu verið varið til
endurbóta á amtsveginum yfir um sýsluna, annars staðar hefur
21