Skagfirðingabók - 01.01.1982, Page 92
SKAGFIRÐINGABÓK
Jóhannesson vist á Garði (Regensen). Samkvæmt skrám um
Garðstúdenta á þessum tima (Regensprovstens Navneproto-
koll og Værelsesprotokoll), sem nú eru í Rigsarkivet í Kaup-
mannahöfn, virðist Gísli hafa komið inn í Garð einhvern tíma á
árinu 1843 (apríl — okt.). Fékk hann þá herbergi nr. 2 á kirkju-
gangi með nafna sínum og samstúdent, Gísla Thorarensen; kom
í það pláss í staðinn fyrir Melsteð (Sigurð?).
A Kirkjugangi voru aðeins tvö herbergi. Þeim var síðar breytt
i bókasafn.
A. m. k. tvær athugasemdir hafa verið ritaðar við nafn Gísla í
herbergjaskrána á Garði, en þær verða nú hvorug lesin. Yfir aðra
hefur verið krassað, en hin máð út.
Svo er að sjá af þeim gögnum, sem fyrir eru um Garðvist
Gísla, að hann hafi horfið þaðan strax á næsta ári — 1844 — hver
svo sem orsökin hefur verið. Voru þó íslenzkir stúdentar venju-
lega 4 ár á Garði, eins og þeir höfðu rétt til. Hvar Gísli hefur
síðan haft húsaskjól og uppihald í Höfn, unz hann hvarf heim
vorið 1846, er nú ekki vitað.
„Hjá honum einum veróur hugur hennar“
Áður en lengra verður fram haldið frásögn af Hafnardvöl Gísla
Jóhannessonar skal getið ummæla, sem varpa nokkru ljósi á feril
hans þessi ár og það orð, sem fór af léttúðarlegu líferni hans á
stúdentsárunum ytra.
Árin 1820 — 40 bjuggu í Oddgeirshólum í Flóa hjónin Stefán
Pálsson Þorlákssonar prests á Þingvöllum og Guðriður
Magnúsdóttir lögmanns Olafssonar. Hún var systir Finns
leyndarskjalavarðar í Kaupmannahöfn. Stefán drukknaði 20.
sept. 1841, 52 ára gamall, en Guðríður bjó áfram með börnum
sínum, Steindóri (f. 16/2 1822) og Sigríði (f. 7/10 1826).
Steindór fór í Bessastaðaskóla og hefði átt að útskrifast þaðan
90