Skagfirðingabók - 01.01.1982, Síða 104
SKAGFIRÐINGABÓK
í Görðum) engu síður maklegan, þá er sá fyrstnefndi töluvert
eldri (G.J. f. 1817, Þ.B. f. 1825) og hefur með veru sinni við
háskólann notið, — fremur hins, — tækifæris til almennrar
menntunar eins og hann þar að auki er fullkomlega jafnaðar-
maður hans í kennimannlegri og guðfræðilegri þekkingu og er
það vottur, að enginn hefur á liðnu ári leyst svo vel úr þeim
spurningum, sem árlegar eru lagðar fyrir stud. theol. að fengið
hafi einkunnina „ágætt“ nema hann og annar til.“
Með hrósyrðum og meðmælum yfirboðara síns, herra
biskupsins Helga G. Thordersens, gekk nú Gísli Jóhannesson í
þjónustu kirkjunnar. Hann fékk veitingu fyrir Reynivöllum 12.
janúar 1852 og var vígður af biskupi í Reykjavíkurdómkirkju
4. sunnudag eftir páska 9. maí, sama ár. Vígslubræður hans voru
Brynjólfur Jónsson síðar í Vestmannaeyjum, Jón Þorvarðsson
síðast í Reykholti og Jón Sigurðsson, sem síðast var prestur á
Prestsbakka á Síðu.
Úttekt og adkoma
Þann 5. júlí 1852 fór fram úttekt á Reynivöllum — stað og
kirkju — undir forsjá prófasts — sr. Árna Helgasonar stiftpróf-
asts í Görðum. Uttektin ber það með sér, að húsakostur á
Reynivöllum var ekki góður. Um kirkjuna þarf ekki að ræða, en
vísast til kaflans um endurbyggingu hennar.
Baðstofan var allstórt hús, 6 stafgólf, portbyggð með afþilj-
uðu hjónahúsi. Annar endi hennar var nýlega uppbyggður, hinn
lakari. Onnur bæjarhús voru misjöfn, t. d. búr í 3 stafgólfum
fallið að veggjum og viðum. Aftur á móti var eldhús í góðu lagi.
Stofuhús, sem getið er í eldri úttektum, frá 1831 og 1843, er nú
horfið með öllu. Utihús voru: Fjós fyrir 10 kýr, 30 kinda hús og
hesthús fyrir 4 hross. í álag átti sr. Gísli að fá 25 rd. 48 sk. og auk
þess sjóð kirkjunnar 476 rd., eða samtals 501 rd. 48 sk. Mest af
því fékk hann greitt í peningum, sumt í skepnum (10 ær á 3 Vi
102