Skagfirðingabók - 01.01.1982, Síða 182
SKAGFIRÐINGABÓK
ágætlega í haust, og mun fóðurbætisgjöfin frá vetrinum hafa átt
sinn góða þátt í því. Vegna vorkuldans spratt seint, og byrjaði
sláttur með langseinasta móti, sem hann hefir nú gert um
margra ára skeið, eða allt að því hálfum mánuði seinna en
venjulega. Ekki var hægt að segja að þurrkar væru miklir, en þó
hraktist aldrei hey, sem talið gæti, og t. d. töður náðust yfirleitt
með beztu verkun, og yfirleitt mátti segja sama um útheyið.
Heyskapur var í meðallagi að vöxtum, töður yfirleitt minni en
venjulega. Haustið var gott, og veturinn fram að nýári svo
einmuna góður, að menn muna ekki eftir slíku. A beitarjörðum
var ekki farið að sýna fénu hey á jólum, og hross þá í haust-
holdum, og verða þau að líkindum ekki þung á það sem eftir er,
þegar þau sluppu svo vel við skammdegishríðarnar og gaddinn.
Á jólum voru Héraðsvötnin auð út í sjó, og eins voru þá allar ár
í héraðinu, og nú eftir nýárið gengu bílar hingað sunnan af
Akranesi, og mátti heita snjólaust á allri leiðinni.
Á Sauðárkróki var slátrað í haust um 23 þúsund fjár, og var
meðalþyngd svipuð og í fyrra eða þó ívið betri. Mest af þessu
kjöti er selt frosið til Englands. Var gefið allt að 1 kr. fyrir kílóið
af bezta kjötinu haustið áður og gærur kr. 1.56 fyrir kilóið. En
nú er búizt við, að kjötið verði ekki lægra, og gærurnar hærri. Er
það reyndar eðlilegt, því útlenda matvaran hefir hækkað mikið á
þessu ári.
Hrossamarkaðir voru hér í sumar, og var allt að kr. 200 fyrir
fjögurra vetra hesta og eldri. Má það gott kallast, því hjá flestum
er uppeldið ekki dýrt á hrossunum hér í Skagafirði. Eins var hátt
verð á afsláttarhrossum í haust, dæmi til þess að folöld væru seld
á 40—50 krónur.
Miklu betra er nú með atvinnu á Sauðárkróki en undanfarin
sumur. Fyrst og fremst var saltað með meira móti af síld (5000
tunnur), og svo var mikil vinna við hafnargerðina. Byggður var
hafnargarður inn og austur af eyrinni fyrir utan kauptúnið, og
voru fullgerðir af honum 100 metrar, en auk þess reknir niður
staurar á 63 metra bili, sem flýtir stórkostlega fyrir, er verkið
180