Skírnir - 01.04.2001, Síða 55
SKÍRNIR
J0KLENS STORM ..."
49
ar skáldsögu, sérstaklega þriðja bindisins, meðal gagnrýnenda voru
einnig mjög góðar og túlkanir þeirra á Sögu Borgarœttarinnar áttu
eftir að hafa áhrif á skilning manna á seinni verkum Gunnars og
annarra dansk-íslenskra höfunda.
Viðbrögðin við fyrstu bók Gunnars á dönsku, ljóðasafninu
Digte sem út kom árið 1911, voru heldur lágstemmd. I Berlingske
Tidende skrifar Julius Clausen um bókina ásamt ljóðabók Jónasar
Guðlaugssonar Sange fra Nordhavet og bókum þriggja norskra
skálda. Dómurinn er stuttur og gagnorður. Gunnar hefur ekki náð
tökum á dönsku Ijóðmáli, hann ofmetnast þegar hann reynir að
skrifa sonnettur á máli sem hann hefur ekki fullt vald á og niður-
staðan er á þá leið að „margt ungt fólk geti skrifað fullt eins góð
ljóð og [Gunnar] Gunnarsson".43 Bók Jónasar fær betri dóm, eink-
um vegna þess að honum hefur tekist betur að temja sér danskt
ljóðmál.
Stuttu seinna lýsti Gunnar því í dönskum blöðum hvernig
söguefni Borgarættannnar rann upp fyrir honum. I grein í Bog-
vennen árið 1912, þar sem hann er kynntur til sögunnar ásamt
Jóni Trausta, gerir Gunnar svofellda grein fyrir kveikjunni að
Sögu Borgarættarinnar.
Fyrir tveimur til þremur árum, þegar ég var að byrja að átta mig á sjálf-
um mér og var farinn að kynnast lífinu og manneskjunum, eftir þau
óreiðukenndu iðuköst sem „lífið úti í heimi" hafði vakið í sál minni og
hugsun, minntist ég skyndilega Islands á ný - ég greindi landslag, mann-
eskjur, reynslu og örlög fólks sem ég þekkti í æsku - og nú birtist þetta
mér í nýju, fjarlægu og framandi ljósi. Augu mín opnuðust fyrir því að
það sem mér í æsku hafði fundist hversdagslegt fólk var einmitt óvenju-
lega - og oft sérkennilega fagurt, og uppgötvaði að hinn grái hversdagur,
hið litlausa líf sem ég hafði haldiðþáð sérstaklega fætt og dæmt til, er því
meira framandi en nokkrum öðrum, þökk sé landinu sjálfu, Islandi, hinu
harðgera, brosandi landi.44
Gunnar slær þarna tón sem danskir gagnrýnendur áttu eftir að
nota óspart við túlkun skáldverka hans og annarra dansk-íslenskra
höfunda.
43 Clausen 191 lb.
44 Gunnar Gunnarsson 1912.