Skírnir - 01.04.2001, Page 80
74
SIGURÐUR PÉTURSSON
SKÍRNIR
um nokkurs konar tal eða skrá yfir íslenskar menntakonur sé
komin frá Gynæceum Thura. Notkun Jóns á orðinu doctus í fyr-
irsögninni er einnig mjög samhljóma því sem sagt er í formála
Thura. Jón notar miðstigið doctiores, en þetta er algeng notkun á
miðstigi í latneskum lýsingarorðum til þess að sýna að stig lýsing-
arorðsins í umræddu tilviki er nokkuð óljóst. Jón notar því var-
færnislegt orðalag sem sýnir okkur að hann sjálfur er efins um að
þær konur sem hann ætlar að nefna hafi verið lærðar, doctae, mið-
að við almenna merkingu orðsins. Hins vegar er hann ekki í vafa
um að nefndar skuli í tali sínu „þær sem i böklegum kunstum edur
skálldskap hafa yfergenged almennar konur, og vered karlmónnum
jafnvægar".17 Þær fimmtán konur sem hann síðan nefnir eru því
tvímælalaust mennta- eða skáldkonur að hans mati sem með réttu
mundu sóma sér í íslensku gynæceum. Af þessum fimmtán konum
virðast sex hafa kunnað eitthvað í latínu og þær hafa því uppfyllt
fyrstu skilyrði þess að vera taldar lærðar. Vert er að huga nánar að
þessum konum og spyrja hvort þær hafi einnig að öðru leyti verið
taldar verðugar þess að hljóta sæmdarheitið femma docta.18
Um systurnar Guðlaugu (d. 1676) og Guðnýju (um 1623 - um
1683) Pálsdætur segir Jón að þær hafi kunnað Dónatinn og að
Guðný hafi kennt börnum sínum hann.19 Sigríði Jónsdóttur (um
17 Add. 3 fol. 154.
18 Eins og fram hefur komið er ekki að öllu leyti ljóst hvaða skilning menn lögðu
í orðið doctus. Greinilegt erþó að samtímamenn Jóns Ólafssonar gerðu miklar
kröfur til þeirra sem taldir voru docti. Jón Þorkelsson Thorkillius (1697-1759)
Skálholtsrektor telur Björn á Skarðsá t. d. ekki doctus. Hann skipar honum hins
vegar á bekk með þeim sem eru vel menntaðir, eruditi. (GKS 2872 4to, 23) í
formála að Gynæceum Daniæ (Thura 1732: 17 o.áfr.) segir höfundur að allar
konurnar sem nefndar eru í ritinu séu vel menntaðar, eruditæ, þótt einungis
hluti þeirra teljist lærðar. Finnur Jónsson biskup (1704-1789) minnist á Jón
Guðmundsson lærða í kirkjusögu sinni (Finnur Jónsson III 1775: 590). Viður-
nefni Jóns þýðir hann með orðinu doctus en segir um leið að Jón hafi verið
nefndur svo í háði, ironice. 1 stuttri umfjöllun (Finnur Jónsson III 1775: 695)
um Sigríði Jónsdóttur biskupsfrú í Skálholti fer Finnur miklum viðurkenning-
arorðum um mannkosti hennar en minnist ekki orði á menntun hennar, þótt
hún hafi verið í hópi best menntuðu kvenna landsins.
19 Guðlaug var gift Katli Jörundssyni (1603-1670) prófasti í Hvammi í Hvamms-
sveit. Meðal barna þeirra var Halldóra, talin fædd um 1640, og má af því sjá að
móðir hennar hefur varla fæðst miklu síðar en upp úr 1620. Guðný var gift síra
Þórði Guðmundssyni (d. 1659) að Kálfafelli. Síra Bjarni Gissurarson (1621-