Skírnir - 01.04.2001, Page 108
102
GOTTSKÁLK Þ. JENSSON
SKÍRNIR
sem skildir voru eftir í handriti hjá Sibbern í Gliickstadt í septem-
ber árið 1775, þegar Jón hélt áfram för sinni til Kristjáns Albert-
háskólans í Kíl, þar sem hann átti eftir að dvelja við nám í sagn-
fræði og heimspeki vel á annað ár. Þrátt fyrir vonir Jóns hefur rit-
ið „Paucula Islandica" aldrei verið gefið út eða þýtt, og þær upp-
lýsingar sem þar er að finna í formála um tengslin við Idea Histor-
iae Literariae Islandorum virðast hafa farið framhjá þeim er fjalla
um ævi og ritstörf Jóns.22 Með þær upplýsingar í höndum ætti að
vera hægt að skera úr um hvaða þátt Jón átti í ritinu, sem eignað
var Sibbern í útgáfunni frá 1760.
6. Samanburður á „Paucula Islandica“ og
Idea Historiae Literariae Islandorum
Enginn vafi leikur á að hér er Idea Histonæ Literariæ Danorum
Alberts Thura lagt til grundvallar, en eins og áður var sagt er upp-
haflega fyrirmyndin rómversk bókmenntasaga Christians Falster.
Ekki er fylgt þeirri aðferð að fjalla um einstök skáld og rithöfunda
í sérstökum greinum, heldur er um að ræða ritgerðir eða kafla í
nútímalegum skilningi, helgaða ákveðnu efni sem tengist bók-
menntasögu íslendinga. Hér er íslenskt mál fyrst gert að umfjöll-
unarefni, bæði fornmálið og samtímamálið, síðan rúnir, en þriðja
ritgerðin um lærdómsgreinar Islendinga er sérstaklega athyglis-
verð, því þar eru bókmenntir flokkaðar eftir tegund eða bók-
menntagrein, en það varð síðar að venju í sögulegum yfirlitsverk-
um um bókmenntir. Síðasti kaflinn fjallar um hvernig haga eigi
samstarfi íslendinga og erlendra lærdómsmanna sem áhuga hafa á
íslenskum fræðum.
Ef frá er talinn formáli Sibberns (bls. 177-80) virðast fyrstu
fjórir kaflarnir í „Paucula Islandica" (hér eftir P.I.) samsvara köfl-
unum fjórum í Idea Historiae Literariae Islandorum (hér eftir
I.H.L.I.): De Lingva Islandorum, prisca et moderna (bls. 1-14) í
22 Undantekning frá þessu er handritslýsing Kálunds (1900: nr. 92), sem þó segir
aðeins að „Paucula Islandica“ sé „[djelvis gengivet hos Sibbern, Idea historiae
literariae Islandorum" án þess að geta neins frekar um tengsl ritanna.