Skírnir - 01.04.2001, Page 131
SKÍRNIR
TIL VARNAR MANNÚÐ OG JAFNRÉTTI
125
Margrjet greinar um og eftir þekktar kvenréttindakonur eins og
hina herskáu Elizabeth Cady Stanton, stofnanda hinnar skipu-
lögðu kvenréttindahreyfingar í Bandaríkjunum, en hún var fyrir-
mynd Margrjetar,12 Helen Hamilton Gardener og Susan Brown-
ing Anthony, bandarískar baráttukonur fyrir kosningarétti og
umbótum, og Augusta Stove Gullen, forseta sambands kanadískra
kvenna sem kröfðust kosningaréttar. Greinarnar fjölluðu um
stöðu og baráttu kvenna og sögðu frá kvennahreyfingum og ár-
angri þeirra um víða veröld.13 „Heimilisráð" um hreinlæti, heilsu-
far og önnur hagnýt mál sem vöktu áhuga kvenna í hlutverkum
þeirra sem eiginkonur og mæður voru einnig birt í ritinu, enn-
fremur ritgerðir „Til ungra stúlkna og mæðra“ sem veita áttu sið-
ferðilegan stuðning og leiðbeiningu. Dagskrá væntanlegra við-
burða á borð við fundi, samkomur o.þ.h. vöktu áhuga í nánasta
umhverfi ritsins, sem og almennar fréttir. Fréttir voru staðbundn-
ar og mest tengdar nánasta umhverfi Selkirk í fyrstu tölublöðum
Freyju, en frá og með þriðja árganginum (1900) var fréttadálki um
Selkirk skipt út fyrir dálk sem bar titilinn „Umheimurinn". Sú
ákvörðun að fjalla um lands- og alþjóðamál var greinilega tekin
með það í huga að konur fengju kosningarétt, því að Margrjet var
eindregið þeirrar skoðunar að til þess að atkvæði kvenna hefðu
eitthvað að segja yrðu þær að kjósa fyrir sig en ekki fylgja skoð-
unum eiginmanna sinna í undirgefni. Af því leiddi að konur
þyrftu að vera upplýstar um samfélagsmál og pólitík og búa yfir
nauðsynlegri hagnýtri þekkingu til að geta tekið þátt í stjórnmál-
um. Skoðanir Margrjetar á samfélagsmálum endurspegluðust að
12 Margrjet ritar m.a. í minningargrein um Elizabeth Cady Stanton í jan.-feb.-
tölublaði Freyju árið 1903 (V:6-7): „Aldrei hefir betri kona stigið fæti á þessa
vora jörð. Aldrei hefir nokkur kona unnið eins mikið í mannanna þarfir og
hún. Engin kona hefir haft eins yfirgripsmikil, víðtæk og betrandi áhrif á heim-
inn og hún“ (65-66).
13 Sjá ummæli Margrjetar í júníblaði Freyju 1899 (11:5): „Vér Islendingar eigum
Ólafíu, Bríet og nokkrar aðrar konur sem að sumu leyti samsvara þessum
kvennhetjum [þ.e. Elizabeth Cady Stanton og Helen Hamilton Gardener]
ökkar vesturheimsmanna. En starfsvið þeirra liggur sem vonlegt er heima á
Fróni. Vér ættum því að kynna oss eftir megni verk þeirra kvenna sem sérstak-
lega berjast fyrir réttindum systra sinna og fylgja þeim álengdar á vegi framfar-
anna“ (4).