Skírnir - 01.04.2001, Síða 138
132
KIRSTEN WOLF
SKÍRNIR
og ekki þurfa hennar með. 'Enþú, sem ævinlega siglir þinn eigin
sjó, hefur munað eftir henni.“18 Þótt ekki sé alveg ljóst við hverja
hún á með „þeir sumir“19 verður ekki litið hjá því að Stephan G.
Stephansson var það skáld sem birti flest ljóð í Freyju þrátt fyrir
að hann virðist hafa verið fremur efins um Margrjeti og Freyju í
upphafi, því í bréfi til Jónasar Hall 21. desember 1897 segir hann:
Þá er hún Magga með Kvennablaðið. Auðvitað er ég ekki skotinn, né lík-
legur til að verða: Ég veit ekki betur en ég sé líka bólusettur. Ég hvorki
veit ‘address’ Möggu né biðla til hennar bréflega upp úr þurru, ég er of
bréflatur til þess. En skyldi svo fara, að blað hennar kæmi út, yrði mynd-
arlegt og ekki ofstækisblað, skal ég heldur hlynna að því. Annars vildi ég
helzt koma þessari vatnaskessu, henni Möggu okkar, einhvern veginn
með lagi inn á kristna kvenfólkið með blaðið sitt.20
Stephan virðist hafa skipt um skoðun því að hann sendi blaðinu
mörg af sínum þekktustu ljóðum á næstu árum, þ. á m. „Verkalok"
(111:6 [1900]), „Kveðið eftir drenginn minn“ (IV: 11 [1901]), „Cur-
ly“ (VI:5 [1903]), „Tíðavísur" (X:8 [1908]) og „Díkónissa“ (XI:12
[1909]). Þó má sjá af bréfum Margrjetar að hún hefur stundum
þurft að þrábiðja hann. Margrjet var greinilega mikill aðdáandi
Stephans G.21 - í bréfi til hans 12. júlí 1901 segist hún ekki vilja
neinn karlmann fremur en Stephan í Freyju22 - og það er ljóst af
leiðara hennar með titlinum „Stephan G. Stephansson" (XI:4
[1908]) að hún hafði litla þolinmæði með fólki sem sýndi honum
ekki næga virðingu. Málið snerist um óviðeigandi móttökur sem
hann hafði hlotið skömmu áður í Winnipeg: „Aleinn var hann lát-
inn sitja uppi á ræðupallinum - auk forseta. Og svo var farið að af-
saka hann - skáldið og gestinn, eins og verið væri að sýna fólkinu
eitthvað, sem þyrfti afsökunar við - mann, sem einhverntíma hefði
18 Finnbogi Guðmundsson (ritstj.) 1972-1975: II, 36.
19 Hugsanlega á Margrjet við Guttorm J. Guttormsson sem birti aðeins fimm ljóð
(1:3 [1898], 1:6 [1898], 1:10 [1898], VIII:2 [1905]-VIII:4 [1905], IX:11 [1907])
eða bróður hans, Vigfús J. Guttormsson, sem birti aðeins fjögur (1:4 [1898], 11:1
[1899], VIII:9 [1906]).
20 Þorkell Jóhannesson (ritstj.) 1938-1948: I, 64.
21 Sjá t.a.m. langa grein hennar „Andvökur - eftir St. G. Stephansson" (XII:4
[1909]-XII:6 [1910]), þar sem hún lofar hann í hástert.
22 Finnbogi Guðmundsson (ritstj.) 1971-1975: II, 30.