Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Síða 45

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Síða 45
E i t u r TMM 2013 · 4 45 „Eitur.“ „Um hvað ertu að tala? Léstu þau drekka eitthvað fokking te eða hvað?“ „Ekki þau – heldur hana. Það er ekkert að teinu. Það á að lengja lífið.“ „Ég vil ekki lengja lífið ef ég þarf að drekka svona sull til þess. Svo geta þeir fundið eitur í líkamanum eftir dauðann, hvort eð er.“ „Ég held að það eigi ekki við um jurtaeitur. Að minnsta kosti virðist eng- inn hafa haft rænu á því að kanna það. Hún var ein af þessum stúlkum sem fengu gigtarsótt í æsku og leið lengi fyrir það, gat ekki stundað íþróttir, varð alltaf að setjast og hvíla sig. Dauði hennar kom engum á óvart.“ „Hvað gerði hún þér eiginlega?“ „Hún var stúlkan sem maðurinn minn varð ástfanginn af. Hann ætlaði að fara frá mér og giftast henni. Hann sagði mér það. Ég gerði allt fyrir hann. Ég og hann, við unnum saman við þetta hús. Hann var allt sem ég átti. Við áttum engin börn af því hann vildi það ekki. Ég lærði trésmíði og þó að ég væri hrædd við að standa uppi í tröppu þá gerði ég það samt. Hann var lífið mitt. Og hann ætlaði að sparka mér fyrir þessa gagnslausu væluskjóðu sem vann í nemendaskránni. Allt sem við höfðum unnið fyrir átti að renna til hennar. Var það sanngjarnt?“ „Hvernig útvegar fólk sér eitur?“ „Ég þurfti ekki að útvega mér það. Það var hérna fyrir utan í bakgarðinum. Það var rabbarbarabeð hérna frá því fyrir löngu. Það er hæfilega mikið af eitri í æðum rabbarbarablaðanna. Ekki í stilkunum, stilkarnir eru það sem við borðum, allt í fína lagi með þá, en mjóu litlu rauðu æðarnar í rabbarbara- laufunum, þær eru eitraðar. Ég vissi þetta, en ég vissi ekki nákvæmlega hvað mikið þyrfti af eitrinu til að það virkaði, svo það sem ég gerði var eiginlega meira svona tilraun. Heppnin var með mér, mörg atriði féllu mér í hag. Í fyrsta lagi var maðurinn minn burtu á ráðstefnu í Minneapolis. Hann hefði auðvitað getað tekið hana með, en það var sumarfrí og hún varð að halda skrifstofunni gangandi. Annað atriði: Hún hefði getað verið með einhverjum. Einhver annar hefði getað verið þarna. Og hún hefði getað verið tortryggin út í mig. Ég varð að gefa mér að hún vissi ekki að ég vissi. Hún hafði komið í kvöldverð heim til mín, það var gott á milli okkar á yfirborðinu. Ég varð að treysta á að maðurinn minn væri sú manngerð sem ýtir öllu á undan sér, að hann hefði sagt mér þetta til að sjá hvernig ég tæki því en hann hefði ekki sagt henni að hann hefði sagt mér. Og þá getur maður spurt: Hvers vegna að losa sig við hana? Hann gæti enn verið á báðum áttum. Nei. Hann hefði alltaf haldið einhvern veginn í hana áfram. Og jafnvel þó að hann gerði það ekki var hún búin að eitra líf okkar. Hún hafði eitrað mitt líf svo ég varð að eitra hennar líf. Ég bakaði tvær bökur. Eina með eitri og aðra án eiturs. Auðvitað merkti ég þá sem var ekki með eitri. Ég ók í háskólann og náði í tvo kaffibolla og fór á skrifstofuna til hennar. Ég sagði henni að ég hefði átt erindi í bæinn, hefði átt leið framhjá háskólasvæðinu og séð þetta huggulega bakarí sem maðurinn minn væri alltaf að tala um, svo ég kom við þar og keypti tvær
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.