Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Blaðsíða 69
H u n d r a ð o g f i m m t í u f e r m e t r a r
TMM 2013 · 4 69
Já, þetta … svaraði maðurinn. Ég hef það bara ekki í mér að vaska þetta
upp.
Og þú vilt semsagt að við gerum það? spurði Dáni. Eða viltu að við búum
hérna með þessum diski, mylsnunni og bollanum alveg ósnertu?
Maðurinn gretti sig. Ég veit að þetta virkar skrítið, sagði hann, málið er
bara að það borgar sig ekki að íbúðin standi auð en í sjálfu sér má ég ekki
snerta neitt. Systir hans samþykkti að ég setti hana í leigu en hún vildi ekkert
skipta sér af því. Við erum svolítið í lagalegu tómarúmi hérna …
Svefnherbergið var stórt, glugginn vísaði út í garðinn og á hjónarúminu
voru sængurfötin svört og kuðluð á gráu teygjulaki. Einn vegginn huldi
fataskápur og á öðrum vegg hékk upplitað eftirprent af málverki eftir
Gauguin. Nakin svarthærð stúlka sneri baki í áhorfandann, hélt hárinu í
tagli og horfði á baksvip annarrar svarthærðrar stúlku sem kraup. Veggirnir
voru málaðir eggjaskurnsbláir.
Við setjum hlutina hans hingað inn, sagði Dáni ákveðinn og Æsa kinkaði
kolli. Hana langaði ekkert til þess að sofa í svefnherbergi horfna mannsins
og þar að auki var þetta stærsta herbergið í íbúðinni fyrir utan stofurnar.
Já, sagði leigusalinn. Og svo er vinnustofan.
Veggi vinnustofunnar huldu bækur. Við gluggann var stórt skrifborð þakið
pappírum og á því miðju stóð gömul kassalaga heimilistölva. Dáni rann-
sakaði kilina á meðan Æsa spjallaði við Hinrik. Engin skáldverk voru meðal
bókanna, bara fræðirit og mestmegnis bækur um stjórnmál, ævisögur
þjóðarleiðtoga og samtalsbækur. Flestar þeirra fjölluðu um kalda stríðið.
Hvað gerði hann? spurði Æsa, … eða gerir?
Hann er stjórnmálafræðingur, svaraði Hinrik, en ég veit samt ekki til þess
að hann hafi unnið við það … eða hvort hann var kannski stundakennari í
Háskóla Íslands? Eitthvað rámar mig í það.
Átti hann engin börn?
Nei, hann var, ef ég á að segja þér alveg eins og er, dálítið sérstakur. Systir
hans sagðist ekki vita til þess að hann hefði nokkurn tímann verið við kven-
mann kenndur.
Áttu ljósmynd af honum?
Ha … já, bíddu við. Hérna fann ég myndina sem var notuð þegar lýst
var eftir honum í fréttunum … Hinrik opnaði skjalaskáp og tók upp glæra
möppu með nokkrum ljósmyndum. Æsa blaðaði í gegnum þær og hafði á
orði að þær væru allar frekar gamlar. Ein myndin var af tvítugum manni
með stúdentshúfu, hinar voru eldri. Af litlum strák á tréhesti eða að leika sér
með kassabíl. Hann var alltaf einsamall á myndunum.
Hann er svo mikið krútt, sagði Æsa brosandi og Dáni sagði að bækurnar
væru nánast allar frá því fyrir fall Berlínarmúrsins.
Hann var mjög upptekinn af kalda stríðinu, sagði Hinrik annars hugar,