Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Side 86

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Side 86
86 TMM 2013 · 4 Ómar Valdimarsson Norður-Kórea: Í unaðs- baði hinnar föðurlegu elsku Í ágúst 2011 átti vefritið Smugan samtal við Torfa Frans Ólafsson, listrænan stjórnanda EveOnline tölvuleiksins, um ferð sem hann hafði farið til Norður-Kóreu ásamt nokkrum öðrum. Myndir Torfa úr þessari ferð voru sýndar á menningarnótt í Reykjavík það sama sumar. Eins og flestir aðrir sem heimsækja Norður-Kóreu upplifði Torfi Frans þjóðernisrembinginn sem þar setur mark sitt á alla þætti mannlífsins – og sá ákveðin líkindi með málflutningi í fyrirmyndarríki verkalýðsins og heima á Fróni. Smugan hafði meðal annars þetta eftir honum: Landið er draumsýn einangrunarsinnans. Þeir hafa í áratugi lagt gríðarlega áherslu á að vera sjálfum sér nægir, sjálfstæðir og engum háðir … Þegar mér finnst umræðan óhóflega mikið farin að snúast um að gefa skít í útlendinga og alþjóða- samfélagið hugsa ég til landsins. Umræðan um Icesave, Evrópusambandið og mat- vælaöryggi virðist stundum á svipuðum forsendum og juche-einangrunarstefna Norður-Kóreu … Á árunum 2000–2003 kom ég þrisvar til Norður-Kóreu og átti þess kost að ferðast nokkuð um landið. Síðan hef ég lagst í lestur á flestu því sem ég hef komist yfir um land og þjóð og hrökk nokkuð við þegar ég sá samtal Smugunnar við Torfa, sennilega einkum vegna þess að ég hafði sjálfur kennt þann samhljóm sem hann lýsti. Ég á ekki við að ég telji þjóðernistil- hneigingar nýja íslenska forsætisráðherrans og sumra samherja hans merki um að hann sé, eða vilji vera, einhverskonar Kim Il-sung, en ég hef haft nokkrar áhyggjur af því að á stöku stað megi finna samhljóm með kóreskum og íslenskum þjóðrembum í gegnum tíðina. Það fer yfirleitt ekki vel þegar ættjarðarást verður að þjóðernishyggju. Um það eru mörg dæmi úr mann- kynssögunni, jafnvel nýleg. Þjóðernishyggjan hefur nefnilega þann skavanka að draga með sér gorgeir og rembing og óþrjótandi þörf fyrir að benda á óvini innanlands og utan í því skyni að draga úr öryggistilfinningu venjulegs fólks og upphefja vafasamar hugmyndir um eigið ágæti. En þótt Ísland kunni að virðast á óljósri leið í augnablikinu gegnir allt
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.