Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Síða 131
D ó m a r u m b æ k u r
TMM 2013 · 4 131
hendinni og semji úr þeim góða sögu
sem norðanmenn gætu teflt fram í hóp
hinna fjögurra fræknu, Eglu, Laxdælu,
Njálu og Grettlu. Hægt er að lesa skáld-
sögu Þórarins Eldjárns, Hér liggur
skáld, sem fyrsta skref í þá átt. Þórarinn
hefur áður með aðdáunarverðum
árangri endurort fornkvæði á borð við
Völuspá til skilningsauka ungum les-
endum og sett saman sérlega vel heppn-
aða kennslubók fyrir grunnskóla um
Snorra Sturluson. Hvort tveggja hefur
haft mikið að segja við að færa arf
handritanna alla leið heim til nýrrar
kynslóðar.
Með þessari skáldsögu fer Þórarinn
enn lengra en í enduryrkingum sínum
með því að steypa saman söguefni
Svarfdæla sögu og Þorleifs þáttar jarls-
skálds og semja úr því nýja sögu með
öllum helstu persónum og atburðum
beint úr fyrirmyndunum. Stundum
hefur verið sagt að það væri lítill skáld-
skapur að endurrita fornsögur en það
getur verið jafn fjarri sanni og þegar
bóndinn í Fljótshlíðinni skildi ekki hvað
Ásgrími Jónssyni málara gekk til að
mála Eyjafjallajökul – því bóndanum
sýndist jökullinn góður eins og hann
væri. Í sögu sinni tekur Þórarinn
óreiðukenndar svarfdælskar sögur, sem
bera þess víða merki að vera ritaðar
nánast beint af manna vörum, og fellir
þær saman í skáldsöguform sem þær
vantar svo sárlega. Hann notar ótæpi-
lega hugmyndir og meðöl úr fornritun-
um sjálfum – sem hafa virkað sem hluti
af munnlegri sagnahefð en njóta sín
síður í því formi sem þær hafa nú haft á
sér um skeið – og yfirfærir í frásagnar-
ramma sem hentar í nútímalegri skáld-
sögu. Í leiðinni sníður hann ýmsa útúr-
dúra og persónur út úr sögunni en lyftir
öðrum, breytir og bætir enda hefur það
á öllum öldum og á öllum tímum verið
helsta aðferð góðra sagnamanna að láta
ekki sögur sínar gjalda heimildarinnar
eða sannleikans. Þannig næst fram sam-
felldur og markviss söguþráður utan um
ævi og skáldskaparafrek Þorleifs
Ásgeirssonar, bóndasonar úr Svarfaðar-
dal, sem er fóstraður hjá móðurbróður
sínum Miðfjarðar-Skeggja, fer utan og
glímir við ógnarstjórnandann Hákon
Hlaðajarl með kynngimögnuðum skáld-
skap og kemur aftur heim þar sem hinn
langi og göldrótti armur valdsins nær til
hans að lokum. Jarlinum hefnist þó
grimmilega að hafa styggt skáldið því
vegna þeirrar svívirðu sem hann varð
fyrir undir kveðandi Þorleifs missti
hann valdafótanna og endaði sína ævi
svikinn af þræl sínum í svínastíu. Slíkur
er máttur og vald skáldskaparins og
ekki að undra að Hallbjörn sauðamaður
hafi látið sig dreyma um að verða skáld
á haug Þorleifs tveimur öldum síðar – og
hlotið skáldagáfu frá haugbúanum að
draumlaunum eins og ramminn utan
um söguna segir okkur frá. Inn í þenn-
an skáldaferil eru ofnar afkáralegar og
ákaflega skoplegar innansveitardeilur í
Svarfaðardal þar sem fjölskylda Þorleifs
kemur við sögu, einkum systir hans
Yngveldur fagurkinn sem – eins og
nafnið bendir til – hefur örvað karlana í
dalnum mjög til dáða.
Ekki einasta gefur Þórarinn þessu forna
söguefni hæfilegt og fagurskapað form
heldur beitir hann víða óvæntu sjónar-
horni sem hinir fornu sagnameistarar
hirtu oft lítið um en verður upplýsandi,
jafnvel afhjúpandi, fyrir nútímalesend-
ur. Þannig beinir hann augum þoland-
ans að ofboðslegum afleiðingum þeirra
hörmulegu ofbeldisverka sem unnin eru
á hinum fornu skinnblöðum undir
merkjum hetjuskapar og höfðingdóms.
Með slíkri breytingu á sjónarhorni
dregur Þórarinn fram hvers konar
glæpagengi hefur safnast að mönnum á