Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Síða 140

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Síða 140
D ó m a r u m b æ k u r 140 TMM 2013 · 4 með þau í þorpið, alla leið að pósthús- inu, snýr hann alltaf við með þau ósend. Og bréfum sem konan sendir honum fleygir hann ólesnum á eldinn. Allir þessir textar hljóta því þau örlög að ná ekki til lesenda sinna og undirstrika þannig sambandsleysið við annað fólk. Auk þess má færa rök fyrir því að bæði rithöfundurinn og konan séu annað- hvort horfin úr þessari veröld eða u.þ.b. að hverfa. Það er vert að gefa því sérstakan gaum hvernig hið sífellt dofnandi letur skáldsögunnar kallast á við andlegt og líkamlegt ástand rithöfundarins. Eftir því sem letrið dofnar á blöðunum um haustið er líkt og náttúran, landslagið og maðurinn sjálfur dofni með því og „allt [verður] gráleitt, vegurinn dökk- grár og votur, hraunið grátt, mosinn grár, þokan grá á fjallinu. Þegar ég lít í baksýnisspegilinn sé ég hvað hár mitt hefur gránað mikið síðasta árið“ (bls. 73). Þegar líður á veturinn hvítnar nátt- úran samhliða því sem letrið í ritvélinni hverfur nánast alveg. Samhliða þessu birtast svartir hrafnar sem halda til í grennd við bústaðinn, en einkum á þaki hans, líkt og fullkomnir svartir bókstaf- ir á hvítu blaði náttúrunnar. Það eina sem stendur eftir er náttúran og mann- skepnan er orðin henni framandi, pass- ar ekki í hana, ekki frekar en texti rit- höfundarins festist á blaðsíðurnar: „Það er einsog náttúran sé eitt óskrifað blað, og þegar ég geng út til að hvíla mig frá ritvélinni finnst mér einsog fótspor mín séu framandi letur sem skrifað er á þetta blað. Ekki á mínu færi að ráða í rittákn- in, en ég veit að þau þýða eitthvað sem gæti skipt máli“ (bls. 114). Að lokum Spor mannsins í hvítum snjónum eru líkt og spor bleklausra hamra ritvélar- innar á hvítum pappírnum. Orðin sem tilheyra skáldsögunni eru að hverfa í hvítan pappírinn og þar með fólkið sem tilheyrir verkinu. Rithöfundurinn skynjar að hann er framandi í hvítri náttúrunni og hann veit að spor hans „þýða eitthvað sem gæti skipt máli.“ Hér erum við komin aftur á þær pólitísku slóðir sem áður var vikið að og snúa að náttúruvernd, manninum í náttúrunni, sambúð hans við hana og hve mjög mannskepnan hefur fjarlægst náttúruna – orðin að framandi letri í henni. Fagur- fræðileg umfjöllun verksins, sú sem snýr að sköpunarferlinu og glímu lista- mannsins, rennur á þennan hátt áreynslulaust saman við pólitíska þræði verksins, og það sýnir svo ekki verður um villst hve þéttofinn merkingarheim- ur Suðurgluggans er. Pólitísk afstaða Suðurgluggans vekur hugrenningartengsl við eitthvað sem kalla mætti niðurbælt öskur. Slíkt öskur er veikara en það sem fær fullkomna útrás. Engu að síður getur áhrifamáttur þess verið fullt eins mikill. Bælingin skilar nefnilega ekki aðeins til áheyr- andans óhæfunni sem framkallar öskrið heldur einnig ofbeldinu eða uppgjöfinni sem felst í bælingunni. Tilvísanir 1 Gyrðir Elíasson: Suðurglugginn, Uppheimar 2012, bls. 12. Hér eftir verður vísað til bókar- innar með blaðsíðutali í sviga. 2 Gyrðir Elíasson: Sandárbókin: pastoral sónata, Uppheimar 2007, bls. 17. 3 Hermann Stefánsson: „Myndkveikjur“, Okkurgulur sandur, ritstj. Magnús Sigurðsson, Uppheimar 2010, bls. 78. 4 Gyrðir Elíasson, Hér vex enginn sítrónuviður, Uppheimar 2012, bls. 26–27. 5 Sandárbókin, bls. 86. 6 Sandárbókin, bls. 93.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.