Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Blaðsíða 5
TMM 2014 · 3 5
Bryndís Björgvinsdóttir
„Allar góðar bækur fjalla um
það hvílíkur bömmer það
er að vera manneskja.“
Mennirnir skapa sjálfir sögu sína, en þeir skapa hana ekki að vild sinni, ekki við
skilyrði sem þeir hafa sjálfir valið, heldur við þau skilyrði sem þeir hitta fyrir sér,
þeim eru fengin, þeir hljóta í arf.1 – Karl Marx.
Thanks for the tragedy. I need it for my art.2 – Kurt Cobain.
Hvort tveggja, hláturinn og tárin, sprettur fram þegar við erum örvingluð og
úrvinda og sjáum engan tilgang í frekari hugsunum eða viðleitni. Ég kýs að hlæja
því það krefst ekki eins mikillar tiltektar eftirá.3 – Kurt Vonnegut.
Það eru nokkrir sagnamenn í föðurfjölskyldu minni og pabbi er einn þeirra.
Mamma heldur því fram að hann sé „fastur í fortíðinni“ en það er meðal
annars sú fortíð sem ég reyni að taka fyrir í verkinu Hafnfirðingabrandarinn
sem út kemur á haustmánuðum 2014. Við mamma vitum ekki af hverju pabba
finnst svona gaman að tala um fortíðina en kannski er hann þunglyndari en
hann heldur. Og þá vísa ég til hins melankólíska ástands sem sálgreinandinn
Sigmund Freud lýsti í ritgerðinni Trauer und Melancholie, en þar hélt hann
því fram að melankólískur tregi væri önnur hlið sorgarferilsins, þar sem fólk
lítur svo á að sátt við missi séu einskonar „svik“ við hin glötuðu viðföng.4
Í stað þess að horfa fram á veginn þá dvelur fólk við það sem var. Það er
líka ágæt lýsing á pabba, en ég veit annars lítið um þunglyndi, og kannski
er pabbi einfaldlega sagnamaður í eðli sínu. En hvað er það þá, að vera
sagnamaður? Af hverju er sumt fólk endalaust að segja sögur af atburðum
sem tilheyra fortíðinni? Hvað er á því að græða?
Sögur pabba fjalla gjarnan um Ingimar Vilberg Vilhjálmsson frænda
okkar. Ingimar fæddist 18. nóvember 1912 og drukknaði 13. október 1959
við Hjörsey í Mýrasýslu. Ingimar átti tíu systkini og var afi minn, Jóhann
Vilhjálmsson vörubílstjóri, þeirra elstur ásamt tvíburasystur sinni, Hallberu
Vilhjálmsdóttur (f. 14. júlí 1907). Hallbera lést í Steubenville Ohio þann 24.
desember 1993 en afi minn í Hafnarfirði 31. mars 1980. Þau systkinin ólust