Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Blaðsíða 127

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Blaðsíða 127
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2014 · 3 127 Um leið og mökkurinn tekur að stíga hlaupa þau út á götu og loka kirfilega á eftir sér. Drengurinn skelfur af spennu, þykist hósta. Gulgrænt gasið sem í ófriðnum mikla hafði fellt æskumenn á ökrum Evrópu leikur nú um kvikmyndahúsin í Reykjavík. (92) Bíóhúsið hefur breyst í vígvöll, er vett- vangur átaka um siðferði og menntun. Hvíta tjaldið rofnar á ný og því rofi fylgir samsláttur ólíkra heima, en því má ekki gleyma að á þessum tíma var ekki óalgengt að kvikmyndasýningum fylgdu fréttamyndir frá styrjöldinni. Hún sækir því í kvikmyndahúsin á fleiri en einn hátt. Annarsstaðar í bókinni er plágunni líkt við hernað og þannig smitast sam- klippið um alla þætti sögunnar. Það er því eðlilegt að sjónarhorn verksins, sem er jafnframt sjónarhorn Mána Steins, sé mótað af kvikmyndinni og frásagnarmátinn taki mið af mynd- skeiðum sem eru klippt saman í frásögn. Þetta kemur strax fram í fyrsta kaflan- um þar sem drengurinn er að þjónusta ‚kóna‘ í Öskjuhlíð. Jafnhliða greinir hann drunur í mótorhjóli og þekkir þar hjól Sólu. Samhliða því að hann sýgur lim mannsins fylgist hann með mótor- hjólinu nálgast, hrynjandi mótorskell- anna fellur saman við hreyfingar höfuðs og handar og senunni lýkur á því að kóninn flýr af vettvangi – skuggavera sem drengurinn sér aldrei framan í – og mótorhjólið stöðvast fyrir ofan klettinn sem hafði skýlt athæfinu. Hér má vel hugsa sér tíðar senuskiptingar milli skuggaveranna undir klettinum og mót- orhjólinu sem nálgast – fókusinn er á dekkjunum og mótornum. Eftir drama- tíska þögn er klippt yfir í næsta kafla: Hún birtist á klettabrúninni líkt og gyðja risin úr dýpstu hafdjúpum, ber við logandi himin litaðan af jarðeldunum í Kötlu, stúlka engum öðrum lík, klædd svörtum leðursamfestingi sem dregur fram allt sem honum er ætlað að hylja, með svarta hanska á höndum, kúptan hjálm á höfði, hlífðargleraugu og svartan trefil fyrir vitum. (12) Enn á ný er auðvelt að sjá fyrir sér dramatíska atburðarás þögullar kvik- myndar; eftir að klipptar hafa verið saman líkamlegar athafnir og vél mót- orsins brestur á með kyrrð og mynda- vélinni er beint að líkama ungu stúlk- unnar þar sem hún gnæfir yfir sviðinu – og er förðuð í stíl, „Varirnar eru rauðar sem blóð. Augun kringd svörtum farða sem lætur púðrað hörundið virðast hvítara en hvítt“ (12). Akkúrat þessa ímynd óttaðist hinn góði doktor hvað mest. Þannig einkennist frásagnarmátinn af skynjun drengsins og lesandi áttar sig á að „hvert augnatillit, hver einasta hreyfing, hver svipur og hver líkams- staða eru hlaðin merkingu og vísbend- ingum um innri líðan og fyrirætlan“ (25). Textavefur Mánasteins er ákaflega þéttur og ber jafnframt merki þeirrar miklu áherslu á samklippingar og áhrifamikið táknmál sem einkennir myndir þessa tíma í bland við „hin ýktu og einfölduðu tilþrif leikaranna“ (25). Innrás plágunnar er iðulega líkt við síð- ari heimsstyrjöldina og vísanir til sam- kynhneigðar eru líka víða. ‚Hápunktin- um‘ í þessum leik tákna er þó náð í lýs- ingu á samförum Mána Steins og dansks sjóliða, en þar falla titlar og ljóð- línur þjóðsöngva saman við lýsingar á ástarleik þeirra og fallbyssum er skotið á sama tíma og þeir ná fullnægingu. Þrátt fyrir íróníska undirtóna (sem koma hvað greinilegast fram í ljóðlínunum) ber senan (og hljóðrás hennar) öll ein- kenni ‚ýktra og einfaldaðra tilþrifa‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.