Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Blaðsíða 94
Æ s a S t r a n d
94 TMM 2014 · 3
Getur ekki útskýrt að hvort sem hann muni eða ekki þá býr fortíðin innra
með honum. Hefur gert hann að þeim manni sem hann er í dag, mótað líf
hans fram að þessu.
Veggirnir í íbúðinni eru hvítir, auðir. Gólfið er þakið gömlum dagblöðum.
Hann stendur í miðri stofunni með málningarfötu í annarri hendi, rúllu
í hinni. Gengur að einum veggnum og hellir málningu í bakka á gólfinu,
bleytir svo vel í rúllunni. Hann strýkur þykkum gulum lit á vegginn, yfir
fingraför og rispur, yfir of mörg ár af tilgangslausu lífi og æsku sem aldrei
var. Málar sólskin í eyðurnar. Það blakta gardínur fyrir opnum gluggunum,
útvarpið spilar gamlan slagara frá gullárunum. Hann raular með, fyrst lágt
svo hærra og hærra uns orðin endurkastast milli veggjanna. Síminn hringir
inni í svefnherbergi. Hann svarar ekki.
Leyndarmál
„Hérna,“ segir hún og hvíslar einhverju í lófa minn, svo lágt að ég heyri ekki
orð. „Þetta er leyndarmál,“ segir hún mér, alvarleg á svip. „Geturðu geymt
það fyrir mig? Bara smá stund.“
Ég kinka kolli og sting kúptri hendinni varlega í hægri jakkavasann. Velti
orðunum á milli fingranna og reyni að hlúa að þeim eftir bestu getu. Við
höldum áfram göngu okkar, hönd í hönd, eftir hvítri Tjarnargötunni. Hún
verður léttstígari með hverju skrefi uns tærnar varla ná að tilla sér áður en
þær lyftast aftur; vængjaðir fætur, álfaspor á nýfallinni fönninni.
Ég reyni að halda í við hana en ég sekk dýpra og dýpra við hvert skref,
gegnum snjó, svo ryk, svo steyptar gangstéttarhellur, alveg niður í frosna
moldina. Svo ósköp þungur á mér, sérstaklega hægra megin. Það rennur á
mig slagsíða, ég fell við og missi takið. Fingur hennar renna úr mínum. Úr
og upp, upp, upp.
„Takk,“ segir hún létt og hlær. „Takk fyrir. Mér líður svo miklu betur
núna.“
Ég reyni að grípa hana en hún hefur þegar tekist á loft. Hún svífur hærra
og hærra. framhjá undrandi álftum og frekum mávum uns hún hverfur upp
í snjóþung skýin. Ég verð eftir, sokkinn upp að hnjám með óþekkt leyndar-
mál í vasanum.