Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Blaðsíða 93

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Blaðsíða 93
Þ r j á r s ö g u r TMM 2014 · 3 93 hlýtur að vera hann. Hann hringir á lögregluna sem fellst á að koma og athuga málið. Þeir ganga inn í verslunina en koma fljótt út aftur, óræðir á svip. „Hann virtist kunnuglegur, var það málið?“ Maðurinn les veðurfréttir í sjónvarpinu. Lengra nær það ekki. Stundum leiftrar ljós. Myndbrot. Það er hús. Það er bók. Það er auglýsing. Það er fólk og staðir. Það eru tilfinningar sem segja ekkert og of mikið. „Hérna?“ „Afi og amma. Manstu, þau bjuggu í kjallaranum?“ Nei. „Er þetta …“ „Ég veit ekki. Spurðu mömmu.“ Enginn veit. „Var engin kærasta? Aldrei?“ „Nei, það held ég ekki. Ekki sem við vissum af að minnsta kosti.“ Af hverju ekki? Var hann svona leiðinlegur? Hann var ekki ljótur. Ekki þá. Núna hins vegar … Samt líður honum alltaf eins og eitthvað vanti. Eitt- hvað eða kannski einhvern? Það er tómarúm í dimmu herbergi, innst inni í honum. „Hvenær dó pabbi?“ Hún lítur á hann forviða. „Dó? Hver segir að hann sé dáinn? Hann er bara fyrir norðan eins og alltaf. Akureyri?“ Hann hristir höfuðið, man ekkert. Langar að spyrja af hverju enginn hafi minnst á mann- inn. Af hverju faðir hans hafi ekki haft samband eftir árásina. Segir ekkert. „Vertu bara feginn að hafa gleymt honum. Það er hvort eð er ekkert til að muna,“ hnussar hún bitur. Hann horfir á hana. Hún er systir hans en hann finnur engin tengsl. Þegar hann hugsar um æsku þeirra fær hann bara hnút í magann. Ekkert til að muna. Ertu viss? „Heyrðu, þekki ég þig ekki?“ segir einhver og hann snýr sér við. Stúlka horfir á hann hikandi, brosir svo. „Jú, ég sver það. Við vorum saman í skóla.“ Hann langar að spyrja: „Saman eða saman?“ Segir þess í stað: „Fyrirgefðu. Ég man aldrei neitt. Hvað heitirðu aftur?“ Hún hlær. „Ásta. Ásta Helgadóttir? Við vorum í sama árgangi í gaggó. Ekkert? Nei, það er ekki von. Ég var svo feimin og þú … Æ, þú veist.“ Hún brosir og hann langar til að hrista hana. „Nei, hvað?“ „Æ bara, svo dulur. Þessi þögla, djúpa týpa, alltaf einn.“ Það segir honum akkúrat ekki neitt. Síminn hringir um miðja nótt. Það er drafandi rödd, drukkin. Hann situr stjarfur í rúminu og hlustar á raus um einmanaleika og kaldar nætur og hversu góður hann var, hversu þægur og vænn og góður, góður drengur. Það átti ekki að gerast – aldrei, aldrei – en mamma hans var aldrei heima, andskotans kellingin alltaf á vöktum. „Elsku drengurinn minn.“ Þetta var bara stutt ferð suður, viðskiptaferð. Vissi auðvitað betur, en hvaða líkur voru á að þeir gengju svona í flasið hvor á öðrum? „Ef þú hefðir bara ekki orðið svona reiður.“ Hann hendir símanum frá sér. Nær ekki klósettinu fyrir fyrstu gusuna. Móðir hans þykist ekkert vita. Neitar að tala um það. Stendur upp og gengur út úr eldhúsinu. Systir hans situr kyrr við eldhúsborðið, starir í gaupnir sér. Segir loks: „Þú manst ekkert lengur. Þú fékkst að gleyma. Veistu hvað þú ert heppinn? Af hverju geturðu ekki bara þakkað fyrir og hætt að tala um þetta?“ Hún brestur í grát og hann veit ekki hvað hann á að segja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.