Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Page 10

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Page 10
B r y n d í s B j ö r g v i n s d ó t t i r 10 TMM 2014 · 3 utan að, ef þeir villtust í stórborginni, það væri mjög einfalt. Heimilisfangið þeirra var Schlachthof fünf. Schlachthof þýddi sláturhús. Fünf var gamla góða fimm.8 Fangarnir fengu síðan það hlutverk eftir árásina að bjarga því sem bjargað varð ofanjarðar: Þeir leituðu að Þjóðverjum á lífi í rústunum, stöfluðu upp líkum þeirra, sem þótti síðan of tímafrekt og voru þau þá brennd til ösku með eldvörpum.9 Einn Ameríkani var þá gripinn, samkvæmt frásögn Vonnegut, við að hnupla tekatli úr einum húsarústanna. „Kaldhæðnin var svo yfirgengileg,“ skrifar hann um þetta atvik í Sláturhúsi fimm. „Heil borg var brennd til grunna og þúsundir manna drepnar. Og svo var þessi ameríski hermaður handtekinn í rústunum fyrir að taka teketil … og skotinn af aftökusveit.“10 Tilgangslaus morð á tilgangslaus morð ofan. Og hvað gerðist svo næst? Vonnegut fór heim til Bandaríkjanna. Staðráðinn í að skrifa bók um atburðina í Dresden. Það tók Kurt hins vegar heil tuttugu og þrjú ár að skrifa bókina, en sjálfur kallaði hann Sláturhús fimm gjarnan bókina um Dresden. Um ferlið að baki hennar skrifar hann í fyrsta kafla bókarinnar: Þegar ég kom heim úr annarri heimsstyrjöldinni, fyrir tuttugu og þremur árum, hélt ég að það yrði auðvelt fyrir mig að skrifa um eyðingu Dresden borgar, þar eð allt og sumt sem ég þyrfti að gera, væri að lýsa því sem ég hafði séð. … en mér komu fá orð um Dresden í hug þá. – Ekki nógu mörg í bók að minnsta kosti. Og mér koma ekki mörg orð í hug núna, þegar ég er orðinn gamall fretur með minningarnar sínar, sígaretturnar og uppkomna syni.11 En hverskonar frásögn geymir þá bókin um Dresden – fyrst Kurt skorti orð um Dresden? Svarið er að mínu mati: Sorglega og skondna frásögn, söguna um Billy Pilgrim sem er sendur í herinn sem ungur maður og tekinn til fanga af Þjóðverjum. Og lokaður inni í Sláturhúsi fimm þegar Bandamenn gera loftárásir á Dresden – rétt eins og Vonnegut sjálfur. En Billy ferðast líka um tímann í sögunni, fram og til baka um eigið líf, og er þá meðal annars brottnuminn af geimverum og hafður til sýnis á plánetunni Tralfamador í einskonar dýragarði (eða öllu heldur „manneskjugarði“) sem geimverurnar heimsækja til að fylgjast með athæfi mannsins í aðstæðum sem eiga að líkja eftir hans eðlilegasta umhverfi. Því er óhætt að segja að bók Vonneguts um Dresden geymi mjög óvenjulega frásögn – hálfsannsögulega lygasögu! En sjálfur skrifar Vonnegut fremst í bókina, um sig og nálgun sína á efnið eftir- farandi: KURT VONNEGUT Þýskur Bandaríkjamaður af fjórðu kynslóð sem nú býr vel á Cape Cod (og reykir of mikið). Hann varð vitni að eldsprengjuárásinni á Dresden í Þýskalandi,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.