Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Side 23

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Side 23
TMM 2014 · 3 23 Atli Bollason Spor Það gat líka orðið dimmt suður í löndum, og næturnar kaldar og hljóðar. Ef þú staðnæmdist á kvöldgöngu og horfðir niður þröngt húsasund og lagðir við hlustir mátti kannski heyra veikan þyt í kittkattbréfi sem skrapaði göturnar eða skrjáf í sængurveri útum opinn glugga, en það var næstum einsog að hlusta á grasið gróa: á endanum vissirðu ekki hvort hljóðin komu innan úr höfðinu á þér, hvort þetta var heilinn að marra eða gormarnir í dýnu ávaxtasalans. Á slíkum kvöldum brá máninn bláleitri birtu á húsaraðirnar sem voru hver annarri líkar, hálfskakkar að sjá og ekki mjög reisulegar þótt hér hafi verið hafst við í nokkur árhundruð, löguð súpa og horft á sjónvarp. Hellusteinarnir endurvörpuðu tunglsljósinu enda máðir og gljáandi eftir ágang milljón skóa, hver með sína sögu. Legðirðu lófann á steinana myndu þeir eflaust ylja þér. Það mátti allavega ímynda sér það. Á breiðustu götum bæjarins voru málmspor greipt í jörðina. Tveir sam- síða teinar sem höfðu einhverntímann verið rennisléttir og gljáð einsog gull en voru núna hrúðraðir og ryðbrúnir. Milli teinanna var örmjór skurður – sjálf sporin, vart þumlungur að dýpt – þar sem hafði nú safnast fyrir drasl: bjórtappar, kjúklingabein, drykkjarrör, plástrar. Á aðaltorginu komu sporin svo saman í undurfallegu mynstri þar sem hver línan skar aðra og maður þurfti að hafa sig allan við ef maður vildi ekki týnast, villast af leið og enda kannski norður við bæjarhliðið eða í garðinum hjá bakaranum þótt stefnan hafi verið niður að strönd og út í sjó eða bara að hlusta á öldurnar. Suma haustmánuðina gat maður stolist upp í klukkuturninn áður en myrkrið breiddi yfir hafið og bæinn og séð ofan frá hvernig sporin glitruðu gullin í lækkandi sólinni. Þá líktust þau helst fíbónakkísku fiskineti sem við ímynd- uðum okkur kannski að væri fullt af spriklandi sardínum. En sporvagnarnir gengu ekki lengur. Þeir höfðu ferjað þorpsbúa bæjarendanna á milli í áratugi áður en stríðið kom. Eða ‘skall á’ segir maður víst, einsog styrjöld sé loft- steinn eða flóð eða einhver að detta og meiða sig. Þá breyttist víst allt. Samt eltum við sporin, við gengum þau á enda og lærðum leiðir vagnanna þartil við kunnum þær utanað einsog þjóðsönginn. Einn daginn höfðum við gengið lengi meðfram sporunum sem lágu frá lystigarðinum norðvestast í hlíðinni, undir gamla virkisveggnum og gegnum verkamannahverfin í vesturbænum, næstum niður að verbúðunum áður en
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.