Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Page 25

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Page 25
S p o r TMM 2014 · 3 25 áttina til hans. Stafur úr gljápússuðum kirsuberjaviði hallaðist að bekknum þar sem hálfetin samloka lá í bréfpoka. Hann virtist ekki taka eftir okkur. Ég leit á Matthías og María leit á mig og Alexander góndi bara áfram. Við vissum ekki hvort við værum að trufla ef við héldum áfram. – Hann er klikkaður. Snarbilaður. – Hvernig þá? – Löngu eftir að vagnarnir voru hættir að ganga þá mætti hann samt á skiptistöðina niðri í bæ á hverjum morgni og stimplaði sig inn. Sat svo aleinn og þambaði kaffi allan daginn og hlustaði á útvarpið og beið eftir að bjöllunni yrði hringt og það væru vaktaskipti. En auðvitað gerðist aldrei neitt. Einn morguninn var búið að negla fyrir hurðina og gluggana en hann hélt samt áfram að koma og borðaði nestið sitt á tröppunum í einkennis- búningnum og beið bara einsog asni. Svo talaði einhver við hann, einhver frá bænum eða sýslumanni eða eitthvað og þá hætti hann loksins að koma. Þetta er rugludallur. – Þú ert að plata. – Nei. Þegiðu. Pabbi sagði mér þetta. Þögn. Og þess á milli: Flugnasuð, fuglasöngur og másandi andardráttur Alexanders í svækjunni. Orðalaust gekk María aftur af stað, löturhægt. Hvað ertu að gera, hvíslaði Matthías æstur á eftir henni. Hnésíður kjóllinn sveiflaðist einsog nýklipptur hártoppurinn þegar hún leit yfirveguð um öxl án þess að svara. Enginn grallarasvipur, engir prakkarastælar; hún horfði bara til baka eitt augnablik og leið svo áfram einsog hún byggi yfir einhverri visku sem okkur skorti, einhverri óskiljanlegri og örugglega kvenlegri fullvissu. Þessi mynd brenndi sig í unga augnbotnana: María í sólleitum kjól með sprungna veggi kirkju- garðsins á aðra höndina og aflíðandi hlíðina á hina, ólífutré á stangli og lauf- græn gresjan sem hverfur í sjóðandi mistur og storkin rykský, svo vegurinn sem hlykkjast niður að strönd og óendanlegur silfurblámi hafsins milli tveggja sandbrúnna kletta, einsog sjóblautur fjársjóður milli sólbrúnna læra. Og gamli sporvagnastjórinn einhversstaðar aftan við hana, úr fókus, líkastur lekandi vaxmynd af sjálfum sér, útbrunnu kerti. Hún gekk alveg að bekknum og tók varlega upp samlokuna sem þar lá um leið og hún horfði stíft á manninn. Hún beið þess að hann sýndi einhver við- brögð en það gerðist ekki neitt. Þá stakk hún brauðinu upp í sig og tók stóran bita. Við sáum bara baksvipinn á henni, en meðan hún stóð þarna ímyndaði ég mér að hún tyggði brauðið sviplaus í rólegheitum, merði saman brakandi bagettuskorpu við tómata og ögn súra skinku og piparrótarsósu með háum smjatthljóðum. Hún tuggði áfram og þegar maðurinn leit loks upp og sneri höfðinu ofurlítið til að sjá framan í hana þá fletti hún kjólnum upp um sig að framan með vinstri hendi og hrópaði oj perri!, grýtti afgangnum af samlokunni á jörðina við fætur mannsins og kom hlaupandi til okkar, skellihlæjandi. Við tókum öll til fótanna, María fremst og Alexander
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.