Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Síða 30

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Síða 30
A t l i B o l l a s o n 30 TMM 2014 · 3 rakna upp. En þarna voru engin fótspor svo greina mætti. Það var engin leið að finna hann núna. Sólin var að setjast meðan ég gekk áfram eftir stígnum og hún fékk rykskýin sem ég þyrlaði upp til að glóa fallega, þau vörpuðu gegnsæjum skuggum á götuna eitt andartak áður en þau leystust sundur og hurfu. Ég hafði ekki gengið lengi þegar ég sá einhverja þúfu í grasinu sem vakti athygli mína. Ég fór af stígnum og út á þurrt grasið sem stakk í fæturna. Það var sérkennileg lykt í loftinu sem ég reyndi að átta mig á hvaðan kæmi. Þegar ég kom nær sá ég að þetta var hundur. Hann lá grafkyrr með munninn hálfopinn; tennurnar beraðar í stirðnaðri grettu. Það var á honum ryklag svo feldurinn hvarf sjónum og dýrið fékk á sig óraunverulegan eintóna blæ því örfínt rykið huldi alla skugga og misfellur. Útlimirnir voru beinstífir og ögruðu þyngdaraflinu. Skorpin ásjóna hans minnti meira á vaxmynd en hund sem var nokkurntímann af holdi og blóði. En svo sá ég maðkana. Til að byrja með tók ég ekki eftir þeim því þeir voru eins á litinn og rykið en svo varð ég var við hreyfinguna. Ég skynjaði hana fyrst ómeðvitað, svo hafði ég óljósan ávæning af einhverskonar skriði eða flökti, dansi jafnvel, áður en ég sá loks maðkana sjálfa þar sem þeir engdust um hljóðlaust einsog hver og einn þeirra liði ónefnanlegar vítiskvalir. Og þá fyrst fann ég lyktina. Þegar raunveruleiki þessa hálfrotnaða hunds varð mér ljós fylltust vit mín af nálykt og ógleðin hvolfdist yfir mig á ný. Höndin seildist hugsunarlaust í vasann og ég greip þéttingsfast utan um sporvagninn og strauk hann með þumlinum um leið og ég reyndi að ná stjórn á önduninni. Ég gat ekki haft augun af hundinum þótt mig langaði ekkert frekar en að hlaupa í burtu. Augu hans læstu sér í mín og við störðum hvor á annan, hann handan eilífðarinnar en ég fastur undir brennandi sólinni. Hún nálgaðist nú hafflötinn í fjarska og bleikti allt sem fyrir geislum hennar varð. Eftir nokkra stund gekk ég tilbaka, framhjá bekknum og samlokunni og meðfram sporunum. Svo beygði ég til vinstri og fetaði mig inn um kirkjugarðshliðið. Skuggar krossanna voru langir og skrælnuð blómin sem lágu við sum leiðin virtust geta orðið að ryki og sópast burtu hvenær sem var. Ég fór ekki langt inn í garðinn heldur hélt mig nærri veggnum og horfði yfir krossana, legsteinana og grafhýsin næst miðjum garðinum. Eftir því sem ég gekk lengra meðfram veggnum breyttust myndirnar sem skuggarnir máluðu og það þurfti ekki mikið ímyndunarafl til að sjá stytturnar hvarfla augunum eða skilja að leggina og þá var maður í huganum kominn hálfa leið að marserandi styttum sem arka um með alvæpni og steingera allt sem fyrir þeim verður. Ég hristi slíka óra af mér og hélt út í horn þar sem ég lét fallast á hnén, rétti úr fingrunum og stakk þeim ofan í þurra jörðina einsog skóflu. Ég sleit rætur grasanna sundur og fann svalandi kulda jarðvegarins. Það var þægilegt að finna moldina þrýsta sér undir neglurnar. Ég skóflaði upp lúkufylli og réðst svo aftur á holuna sem iðaði nú af áður ósýnilegu lífi; ánamaðkar og bjöllur af öllu tagi flúðu ýmist uppum þetta opna sár eða
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.