Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Page 55

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Page 55
E i g i n m a ð u r i n n o g b r ó ð i r h a n s TMM 2014 · 3 55 órótt er hann hlustaði á bróður sinn tala. Fjölskyldan hafði aldrei minnst einu orði á það hvernig Böddi og Maríón höfðu hist. Hann hafði alltaf haldið að það væri almenn kurteisi að vera ekki að ræða það. Honum kom í hug hve oft hann hafði heyrt móður sína segja við fólk að sonur hennar hefði kynnst konunni sinni þegar hann var í fríi og hvernig hún tók alltaf fram að tengdadóttir hennar væri frá Manilla frekar en að segja að hún væri frá Filippseyjum. „Var það svoleiðis hjá Maríón? Að hún vildi komast í burtu?“ spurði hann, og kom sjálfum sér á óvart með eigin hnýsni. „Já, svona eiginlega,“ sagði bróðir hans. „Ekki svo slæmt samt. Hún bjó ennþá hjá mömmu sinni og var enn ógift. Hún vildi komast burt og lifa sínu eigin lífi. Vildi ekki vera að búa hjá mömmu sinni alltaf og sá ekki fram á að giftast neinum þar sem hún var. Hún átti ekki fyrir því að kaupa sitt eigið hús svona ein og það er strembið að leigja einsamall þarna. Mjög dýrt og ekki margt að fá. Flestir vilja bara leigja pörum og fjölskyldum.“ „Svo hún ákvað bara að koma hingað í staðinn?“ „Já. Hún sagði að það hefði ekki skipt hana svo miklu máli hvert. Hún var orðin leið á Cavites, fannst hún vera föst þar. Þetta er lítil borg hinum megin við flóann frá Manilla. Þegar ég fór að heimsækja hana þá hittumst við í Manilla og tókum svo ferjuna til Cavites. Hún var með einhverja frænku með sér til að passa að ekkert gerðist eða eitthvað. Þegar við náðum loksins að tala saman í friði fyrir frænkunni þá sagði hún að hún hugsaði um þetta allt saman eins og það væri ævintýri. Að við værum að fara að upplifa ævintýri saman.“ Hann þagnaði og leit á Jóhann. „Við vissum hvað við vorum að gera,“ sagði hann. „Við vissum að við værum ekki ástfangin, ekki ennþá. Við héldum að það myndi koma seinna. Að saman myndum við rækta með okkur ást. Ég hitti fjölskylduna hennar. Þau voru mjög gott fólk, öllsömul. Pabbi hennar er dáinn en ég talaði við mömmu hennar. Hún spurði mikið út í vinnuna og íbúðina mína. Hvort ég ætti bíl. Hún var að passa að ég gæti séð fyrir dóttur hennar, skilurðu? Mamma hennar sagði mér að hún og pabbi Maríón hefðu gift sig að ósk fjöl- skyldna þeirra. Þau þekktust næstum ekkert þegar þau giftust en ræktuðu síðan með sér ást. Alveg eins og við ætluðum að gera.“ Eitthvað við það hvernig Böddi sagði „ræktað með sér ást“ hljómaði skringilega í hans munni, og Jóhann áttaði sig á að hann var að endur- taka eitthvað sem Maríón hafði sagt eða, sem var líklegra, eitthvað sem móðir Maríón hafði sagt við þau og hafði endurómað í eyrum þeirra allt hjónabandið. Orðin hljómuðu sorgmædd og örvæntingarfull. Uppfull af hinstu von móðurinnar er hún horfði á dóttur sína hverfa á brott með ókunnugum manni og varð að sitja eftir og vona það besta og reyna að sjá fyrir sér bjarta framtíð fyrir dóttur sína og barnabörn í framandi landi langt í burtu frá heimili og fjölskyldu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.