Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Page 63

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Page 63
A l d u r TMM 2014 · 3 63 grind, sem var eins og stálbeinagrind. Stoðgrindin boraði sig inn í alla vöðva konunnar sem var ævaforn. Án tækisins hefði hún varla getað hreyft fingurna. Vírar lágu úr grindinni inn í tengingar sem voru boltaðar við höfuð kúpuna. Vökvi rann eftir pípum og stálpinnar ýttu við útlimunum. Konan starði á sjónvarpsskjá og andaði í takt við grindina. Hljóðið minnti á stíflað niðurfall. Spelka hélt höfðinu uppréttu. Hjarir á hálslið stoð- grindarinnar byrjuðu að ískra og höfuð konunnar snérist. Hún hafði orðið vör við Pálínu. Rafmagnsmótorinn gaf frá sér suð um leið og hún snéri sér við. Tóm þokukennd augun störðu á gestinn. Líflaust bros færðist yfir andlitið. Gamla konan hafði greinilega ekki fengið gest í langan tíma. Hún reyndi að segja eitthvað en náði bara að mynda torkennilegt kokhljóð. Tækið rúllaði af stað á fjórum hjólum, sem voru negld við hvorn fót. Heyra mátti inniskó gömlu konunnar dragast eftir plastgólfinu. Pálína ætlaði ekki að láta króa sig af og hraðaði sér upp næsta stiga. Palli var á þriðju hæð. Pálína stökk upp tröppurnar og fann gæsahúð hríslast um bakið. Þessi vélrænu gamalmenni minntu á martraðaverur. Von- andi yrðu ekki fleiri á vegi hennar. Pálína gægðist inn á hæðina og sá engan á ferli. Hún læddist eftir gang- inum. Hvert herbergi var hurðarlaust með rúmföstum íbúa. Gervilungu og vélahjörtu héldu fólkinu á lífi. Tækin gáfu frá sér smelli og dynki sem berg- máluðu um rýmið. Flestir sváfu en aðrir kölluðu í átt að gestinum sem tiplaði fram hjá dyrunum. „Stefán minn, ert þetta þú Stefán minn? Mikið er langt síðan að þú hefur komið.“ „Guðríður, eru strax komin jól? Ég er ekki búin að hafa mig til.“ „Talaðu við mig, enginn hefur talað við mig svo lengi.“ „Ég get þetta ekki, lofaðu mér bara að deyja.“ Allir höfðu sömu tilfinningalausu gerviröddina. Pálína jók hraðann í hvert sinn sem einhver kallaði og fann augun fyllast af tárum. Að lokum var hún farin að hlaupa. Auðvitað heimsótti enginn þetta fólk þegar þetta var upp lifunin. Þessi stofnun var ekkert annað en draugahús. Inni í herbergi Palla afa gat hún lokað að sér. Glerhurð rann úr ósýnilegri rauf í dyrunum. Pálína lagði ennið upp að köldu glerinu. Raddirnar voru þagnaðar. „Ertu komin, elskan mín?“ sagði Palli með þessari ógeðslegu tölvurödd sem allir sjúklingarnir deildu. „Ég átti ekki von á þér fyrr en eftir viku. Eða er kannski liðin vika? Það er erfitt að vita hvað tímanum líður hérna.“ Pálína leit á Palla og brosti. Hann var varla annað en skinn og bein. Hundruð gúmmíslanga stungust inn í líkamann og héldu honum á lífi. Hún heyrði lágt andvarp. Röddin var löngu horfin en tölvan átti auðvelt með að þýða hvíslið. „Mundirðu eftir honum?“ spurði Palli. „Já,“ svaraði Pálína. Hún lagði höndina upp að munninum en þar var bara
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.