Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Page 129

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2014, Page 129
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2014 · 3 129 Aðalsteinn Ingólfsson: Gull, silfur og plett Þór Magnússon – Íslenzk silfursmíð I & II, 400 bls + 287 bls, Þjóðminjasafn Íslands, 2013 Eftir því sem árin líða er mér æ meiri ráðgáta hvaða mælikvarða dómnefndir styðjast við þegar þær tilnefna íslenskar fræðibækur til viðurkenninga eða verð- launa. Þess skal getið að sjálfur hef ég nokkrum sinnum orðið aðnjótandi slíkra viðurkenninga og því síður en svo óánægður með minn hlut í því lotteríi. Hins vegar varð nýlegt tilfelli mér sér- stakt umhugsunarefni. Í fyrra kom út tveggja binda verk Þórs Magnússonar, fyrrverandi þjóðminjavarðar, um íslenska silfursmíð. Þetta verk, sem óhikað má kalla grundvallarrit um silf- ursmíð og silfursmiði á landinu frá upp- hafi landnáms og til vorra tíma, hefur Þór unnið að mestan hluta starfsævi sinnar. Burtséð frá ótvíræðu heimildar- gildi sínu er ritið sérstakt augnayndi í hvívetna, smekklega hannað og prýtt ljósmyndum Ívars Brynjólfssonar. Nú bregður svo við að þegar fræði- bækur eru tilnefndar til Íslensku bók- menntaverðlaunanna 2013, er Íslensk silfursmíð fjarri góðu gamni, ásamt öðru tímamótaverki sem Þjóðminja- safnið stendur að og fjallað var um nýlega í TMM, bók Ingu Láru Baldvins- dóttur um Sigfús Eymundsson. Þá er nærtækast að álykta að Þjóðminjasafnið hafi, af ástæðum sem ég fæ engan botn í, ákveðið að tilnefna þessi tvö rit ekki til bókmenntaverðlaunanna. Og eins og alþjóð er kunnugt koma ótilnefnd rit ekki fyrir augu dómnefnda. Er þetta skýringin á fjarveru Íslenskrar silfursmíðar? Þess má geta að útgefandi þarf að inna af hendi greiðslu fyrir hvert verk sem hann tilnefnir. Síðan víkur sögunni að viðurkenn- ingum Hagþenkis fyrir árið 2013, sem snúast um tíu úrvals fræðirit, sem dóm- nefnd á vegum þess ágæta félags telur lofsverð; eitt þeirra hlýtur svo eftirsótt peningaverðlaun félagsins. Þar var rit Ingu Láru að sönnu inni í myndinni, en aftur var horft framhjá riti Þórs. Og þá er vissulega tilefni til vangaveltna. Getur hugsast að rit Þórs þyki ekki nógu alþýðlegt eða nógu mikið fyrir augað? Tæplega fer framhjá neinum sem hefur bindin tvö um íslenska silfrið undir höndum að markhópur verksins er ekki áhugafólk í leit að auðmeltri upplýsingu eða einskærum myndskreytingum á gulli og silfri. Til að mynda er síðara bindið nánast ómyndskreytt upptalning þeirra 530 gullsmiða sem Þór hefur fundið heimildir um að hafi starfað hér á landi, ásamt viðauka um tæplega 30 íslenska gullsmiði sem störfuðu eða ílentust í Danmörku. Þá held ég að fullyrða megi að fyrra bindið, með sinni nákvæmu útlistun á sögu íslenskrar silfur- og gullsmíði í rúmlega eitt þúsund ár, lýsingum á smíðaefni og aðferðum, kirkjusilfri, kvensilfri, borðbúnaði og reiðtygjum og aðskiljanlegum öðrum smíðisgripum, ásamt með viðaukum um leturgröft, farandsala og gullsmíðar í seinni tíð, eigi fyrst og fremst erindi við fag- og safnafólk. En til þessa hefur sérhæfing ekki verið talin ljóður á fræðiriti, ekki síst einstæðu riti eins og því sem hér er til umfjöllunar. Þakklátt handverk Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að rit- nefnd bókarinnar hafi verið óþarflega sparsöm þegar kom að myndskreytingu efnisins. Þá á ég ekki einvörðungu við fjölda mynda, heldur einnig hönnun og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.