Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Page 84

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Page 84
Á s d í s R . M a g n ú s d ó t t i r 84 TMM 2017 · 2 Lourmarin til Panthéon-grafkirkjunnar í París þar sem stórmenni landsins hvíla. Ekki varð af því vegna andstöðu Jean Camus, sonar rithöfundarins, sem taldi það vera í mótsögn við líf Camus og myndi auðvelda valdhöfum að tileinka sér verk hans.20 Vissulega barðist Camus fyrir góðan málstað, segir Ansel, var réttum megin, nema þegar kemur að Alsírdeilunni. Þetta komi skýrt fram í Útlend- ingnum og reyndar fleiri verkum; Meursault drepi „Arabann“ – ekki Alsír- inginn – vegna þess að í nýlendusamhenginu eigi hann ekki skilið að lifa, sé einskis virði. Því sé ekki minnst á hann í síðari hluta verksins, hann sé einfaldlega gleymdur, án þess þó að hafa nokkru sinni átt sér sögu, hvað þá nafn. Þarna blasi við ójafnræðið sem ríkti milli Alsíringanna og frönsku nýlendubúanna. Sólin beri ekki ábyrgð á morðinu heldur hafi hatrið stýrt gjörðum Meursault, hatrið sem aðskildi þessa tvo hópa. Þess vegna sé fráleitt að tengja verkið við absúrdismann eins og Sartre gerði og Camus reyndar líka. Þarna, skrifar Ansel, sjáum við hvað Camus fannst raunverulega um Alsírdeiluna, en kom ekki fram í viðtölum og blaðapistlum; skáldskapurinn, bætir hann við, kemst nær sannleikanum. Hann rifjar upp að Camus taldi „að Frakkar yrðu að sigra landið á nýjan leik“, ekki með ofbeldi eins og fyrra skiptið heldur með því að sýna Alsíringum réttlæti, komast að mála- miðlun sem kæmi í veg fyrir aðskilnað.21 En þarna telur Ansel að Camus hafi brugðist, verið ófær um að sjá að nýlendustefnan getur ekki verið réttlát, þar sem hún er óréttlát í eðli sínu; honum hafi verið ómögulegt að sleppa takinu og hugsa út fyrir nýlendurammann. Ansel byggir greiningu sína til dæmis á verki Edwards W. Said, en einnig á nákvæmum lestri á greinum, ritgerðum, skáldverkum og handritum Camus. Það má rifja upp í þessu samhengi að eftir að Camus tók við Nóbelsverð- laununum árið 1957 í Stokkhólmi hitti hann sænska nemendur og ræddi við þá um afstöðu sína til sjálfstæðisbaráttu Alsírbúa. Þá sagði hann meðal ann- ars: „Ég hef alltaf fordæmt ógnarstjórn. Ég hlýt einnig að fordæma hryðju- verk sem framin eru í blindni, til dæmis á götum Algeirsborgar, og sem dag einn gætu bitnað á móður minni eða fjölskyldu. Ég trúi á réttlætið en ég mun verja móður mína á undan réttlætinu.“22 Síðasta setningin olli mikilli reiði í Alsír og í augum óvina hans í Frakklandi tók Camus fjölskyldu sína, sam- félag sitt, samfélag Frakka í Alsír, fram yfir réttlætið og málstað innfæddra Alsírbúa gegn nýlenduherrunum. Þegar hann segist verja móður sína frekar en réttlætið má þó telja að Camus hafi átt við réttlætið þegar það tekur á sig mynd terrorismans, en hann hafði um svipað leyti lýst yfir stuðningi við Alsírsku þjóðarhreyfinguna (MNA) sem var hlynnt pólitísku fjölræði.23 En er það svo að Camus tjái fyrst og fremst hið „andstyggilega hugarfar nýlendustefnunnar“ – la sale mentalité coloniale eins og Yves Ansel kemst að orði – í verkum sínum? Er réttast að líkja Meursault við Tinna í Kongó24 eða hafa þeir sem enn hrífast af Útlendingnum eitthvað til síns máls, hvort
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.