Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Side 134

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2017, Side 134
U m s a g n i r u m b æ k u r 134 TMM 2017 · 2 stríð, mannkynssögu, þjóðsögur og myndasögur. Áherslan á úrvinnslu texta kemur vel fram í orðaskiptum sögumanns og hlustandar í Augu þín sáu mig, þegar hún segir: „Ekki fleiri sögur!“ og hann svarar „En þetta er bókmenntaleg tilvís- un!“; „Hún lætur [söguna] kallast á við heimsbókmenntir“ (205–6). Tilvitnunin úr Ég er sofandi hurð í upphafi þessarar umfjöllunar ítrekar þessa áherslu: „svo ekki fari á milli mála að saga mín kallist á við aðrar meiriháttar sagnarlistir“ (379), og rekur síðan þær fjölmörgu bókmenntagreinar og frásagnir sem að sögu hans koma. Frásagnaraðferðin er lýsandi dæmi um textatengsl (intertextualité) eins og þau birtast í kenningum bókmennta- fræðingsins og sálgreinandans Júlíu Kristevu. Textatengsl er hugtak sem Kristeva skilgreinir sem tilfærslu eða víxlun eða ferðalag eins táknkerfis yfir í annað. Þessi tilfærsla textatengslanna felur í sér „gagnkvæm skipti og umbreytingu“ á báðum þeim orðræðum sem víxlunin tekur til.8 Þannig umbreytir Sjón stöðugt sög- unni um góleminn, allt frá því að segja hana sem sögu af tilurð barns (góleminn birtist alltaf fullorðinn og alskapaður í þjóðsögum og skáldverkum) yfir í að afhjúpa að í raun er ekki um gólem að ræða, heldur mann sem þjáist af sjald- gæfum sjúkdómi og samsamar sig þess- ari goðsagnaveru. Jafnframt segir hann sögur af tveimur öðrum persónum, Aletu, sem er líka að umbreytast og Hrólfi, sem á segulbandinu rekur sína sögu um það hvernig hann skapar sjálfan sig sem ofurmenni, eftir að hafa gefist upp á þeim draumi að verða rithöfundur. Í staðinn (endur)skrifar hann sögu lík- amans í krafti erfðatækninnar og eyðir svo mannkyninu með því að stuðla að sköpun gervigreindar, eins og áður segir. Sögum þessara þriggja er teflt saman í Ég er sofandi hurð og jafnframt er minnt á sjálfa frásögnina á ýmsan hátt, tilurð hennar og tilfærslu. Allar sögurn- ar sem fléttast inn í textann eru augljóst dæmi, svo og segulbandið, rannsóknin og spurningalistinn. Ljósasta dæmið um sjálfsögulega hlið textatengslanna er þó áherslan á sagna- mennsku og samspil sögumanns og hlustanda. Þetta kemur vel fram í kafla rétt fyrir miðju Ég er sofandi hurð. Þar hallar Jósef sér aftur í sófann eins og til að ná meiri fjarlægð milli sín og Aletu, líkt og „bilið á milli þeirra gefi honum þá frásagnarlegu fjarlægð sem hann þarf að hafa á sjálfan sig til þess að sagan sé trúverðug“, jafnframt því að geta betur fylgst með hlustönd sinni og tryggt að athygli hennar bresti ekki með því að hagræða „þræði og áherslum“. En kannski er tilgangurinn annar, „hefur Jósef óvart gripið til eins af elstu brögð- um sagnameistaranna, þeirra sem láta sér ekki nægja að hafa andlegt vald á áheyrendum sínum heldur taka stjórn- ina á líkama þeirra strax í sögubyrjun með því að lækka róminn og halla sér aftur á bak svo að þeir halli sér fram“ (447). Þessi „hörfandi upphafshreyfing sögumanns […] dregur áheyrendur hans með honum yfir ósýnileg landa- mæri sagnaheimsins – og staðfestir þar með að allar sannar bókmenntir tala til búksins jafnt sem hugans“ (448). Aleta hallar sér fram og „við þá samstilltu hreyfingu tekst með þeim sáttmáli um hver sé leiðsögumaðurinn og hverjir ferðalangarnir í ferðinni sem þá er að hefjast“. Og í upphafi ferðar „bera allir sömu von í brjósti“ (447): Að hlutverkin haldist óbreytt söguna á enda, mælandinn haldi athygli hlust- enda sinna, að enginn og ekkert glatist á leiðinni, allra síst sjálf sagan þar sem stundum kann að verða laust fyrir fæti,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.