Tímarit Máls og menningar - 01.12.2016, Blaðsíða 70
K r i s t j á n J ó h a n n J ó n s s o n
70 TMM 2016 · 4
Í sögunni Draugaslóð eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, sem er verð-
launuð íslensk unglingasaga, er einnig vikið að dauðanum og skilningi
okkar á honum. Kristín Helga hefur sett saman margar bækur fyrir börn og
unglinga. Í Draugaslóð verður dauðinn hluti af lífinu með því að opnað er á
milli heima lifenda og dauðra og þeir fá að vera til í sömu frásögn. Fjölmörg
dæmi um þetta mætti taka úr fantasíubókmenntum af ýmsu tagi, ekki síst
fyrir börn og unglinga. Nýlegt dæmi er bókin Drauga-Dísa eftir Gunnar
Theodór Eggertsson sem kom út árið 2015. Það er skemmtileg, fantastísk
unglingasaga sem tengist frásagnarhefðinni og gerir ráð fyrir því sem sjálf-
sögðu að dauðir og lifandi séu á ferð í sömu sögum. Slíkir textar eru skyldu-
námsefni í skólum, skrifaðir á íslenskri tungu sem meiri hluti þjóðarinnar les
enn án verulegra vandræða ef stafagerð og stafsetning eru færð til nútíma. Oft
deila menn um það, jafnvel með stórkarlalegum yfirlýsingum, að hve miklu
leyti börn og unglingar á ýmsum aldri skilji málfar þjóðsagna og Íslendinga-
sagna en gagnlegar rannsóknir á því liggja ekki fyrir. Fyrir 40 árum eða þar
um bil tíðkaðist að staðhæfa að allir Íslendingar skildu alla forna texta en
nú heyrast oft ábúðarfullar yfirlýsingar um að engir Íslendingar skilji neina
texta. Hér vantar rannsóknir en erfitt er að segja til um hvort skilningsleysi
á texta tengist litlum lestri og slakri bókmenntakennslu eða aldri textanna.
Munur á orðaforða fornmáls og nútímamáls ætti að vera viðráðanlegur fyrir
flesta Íslendinga ef þeir vilja það og frávik í málfræði frekar lítil. Þegar ég segi
viðráðanleg á ég við að marga forna texta ættu skólanemar að geta lesið með
hæfilegri umhugsun og íhugun.
Í greinasafninu Alþjóðleg viðhorf til dauðans í barnabókmenntum8 er
leitað í bókmenntir 14 þjóða og þar segir í upphafi bókar:
Í þessari bók er litið á það hvernig dauðinn birtist í barnabókum víðs vegar um
heiminn. Það er mikilvægt fyrir sívaxandi tengsl bernskurannsókna, barnabók-
mennta og dauðafræða. Höfundar efnis íhuga hvernig dauðinn birtist bæði í texta
og myndum og beina athygli að því hvernig hann birtist í raunsönnum lýsingum,
sem heimspekilegt viðfangsefni, sálfræðileg áskorun og fellur að félagslegu kerfi.
(Clement & Leyli 2, 2016) 9
Draugaslóð og dauðinn
Í sögunni Draugaslóð nálgast Kristín Helga dauðann og merkingu hans í
heimi lifenda á áhugaverðan hátt. Þar er framar öðru stuðst við merkingar-
heim íslenskra þjóðsagna og töluvert fjörug samskipti milli heima lifenda og
dauðra. Roberta Seelinger Trites segir í bók sinni Disturbing the Universe:
„Dauðinn er … í huga mannanna jafnvel öflugri en kynhvötin, því að þó
sumir geti fræðilega séð lifað án kynlífs þá flýr enginn dauðann.“ (Seelinger
Trites, 117: 2000)10
Þar að auki hafa menn sett á fót margvíslegar stofnanir til þess að takast
á við dauðann, flest trúarbrögð hagnast verulega á að útskýra dauðann fyrir