Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Page 2
2 TMM 2017 · 4
Frá ritstjóra
Í þessu hefti kennir ýmissa grasa að vanda. Við minnumst sérstaklega
skáldsins góða, Sigurðar Pálssonar, sem lést í september síðastliðnum, með
tveimur ljóðum eftir skáldbræður hans sem birtast hér fremst í stafrófsröð, þá
Sjón og Þórarin Eldjárn, og nemandi Sigurðar, Arndís Þórarinsdóttir minnist
kennarans. Auk þess er eitt af gönguljóðum annars gamals nemanda hans,
Sverris Norland, aftar í heftinu helgað Sigurði.
Komið er að kveðjustund hjá ritstjóra. Ég þakka lesendum góða samfylgd
og allt það góða efni sem ritstjórinn hefur haft úr að moða þessi ár – og
hefur iðulega sprungið ramminn um heftið með þeim afleiðingum að reynt
hefur stundum á þolinmæði þeirra sem bíða þess að sjá efni sitt birtast. Öll
hafa þau samskipti verið ánægjuleg. Ekki fer á milli mála að TMM gegnir
mikilsverðu hlutverki í íslensku bókmenntalífi, sem vettvangur fyrir frum-
birtingar á ljóðum og sögum rithöfunda, nýrra sem reyndra, og greinar um
bókmenntir og þjóðlíf í breiðum skilningi. Vonandi á tímaritið áfram eftir að
vaxa og dafna mörg ókomin ár, með þau orð Sigurðar Pálssonar að leiðarljósi
að fegurðin er „ekki skraut heldur kjarni lífsins.“
Guðmundur Andri Thorsson