Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Blaðsíða 26
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
26 TMM 2017 · 4
um það sem á undan kom en núna skil ég að hrokinn var óöryggi og að til
þess að taka svona ákvörðun, að vera ljóðskáld, þarf maður að hafna hefðinni
og fortíðinni, að minnsta kosti rétt á meðan. Annars bara guggnar maður.
Tilfinning þín fyrir síðustu öld? Þú kynnist henni, nærð í skottið á henni
og þekkir sögu hennar.
Já, svona ábyrgðarlaus þensla en líka gáski og gleði. Fólk sá ekki fyrir brjál-
æðislegar afleiðingar þess sem átti sér stað, þessarar ofboðslegu fjölgunar
mannkynsins og breytinga á neysluháttum. Ég skil að fólk hafi nostalgíu
gagnvart þessum tímum, allt var á uppleið, allt að þenjast út. Æðislegt partý.
Geturðu sagt fyrir um, séð fyrir þér, hvernig skáldskapur þessarar aldar
verði öðruvísi en hinnar og þarsíðustu?
Svona Nostradamus … þreytandi týpa! Já. Hugmyndir okkar um eignar-
rétt hafa breyst og munu breytast ennþá meira. Lestur er í þróun. Ég held
að fólk verði hraðlæsara og muni geta innbyrt helmingi meira magn af
upplýsingum í einu og að skáldskapur verði þess vegna niðursoðnari. Eða
kannski er það öfugt og verður eins og kókflöskuþróunin, úr litlu flöskunni
í tveggja lítra í tveggja lítra kippu. Maður mun geta skrollað á blaðsíðum.
***
Aha. Ertu pólitísk?
Já ég hugsa að ég sé það alltaf, svona óvart með, í grunninn.
Viltu breyta heiminum?
Já.
Ertu femínisti?
Já.
Er öðruvísi að vera rithöfundur af kvenkyni en af karlkyni? Hver er munur
á stöðu karl- og kvenhöfunda?
Það er kannski misólíkt eftir því hversu mikil kona maður er og hversu
mikill karlmaður. Ef maður er alveg brjálæðislega gagnkynhneigð alveg bara
kona-kona-kona þá er það mjög ólíkt því að vera sjúkt gagnkynhneigður
karla-karl með stóru Kái. Karla-karla karlhöfundarnir eru allir svona
hæpandi og seljandi í bunkum og haugum á meðan konu-kvenkonurnar
geyma sitt efni í skúffum. En svo rennur það kannski saman í miðju rófi og
nær jafnvægi. Vonandi innra með okkur öllum á endanum.