Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Blaðsíða 14
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
14 TMM 2017 · 4
Já, þú varst uppátækjasamur og skemmtilegur unglingur, ákafur og
ástríðufullur, herbergið fullt af teikningum, klæddist svörtum leðurjakka,
hárið hvítt, ör og létt og hröð og skotin í strákum.
Já, ég var alltaf skotin í strákum og ég var alltaf að yrkja þegar ég var ung-
lingur. Ég byrjaði að yrkja þegar ég var ellefu ára og orti á fullu. Svo tók ég
það rosalega alvarlega og var á kafi í því að lesa upp ljóð.
Hvenær ákvaðstu að verða rithöfundur og skáld?
Það var ekki fyrr en ég gaf út fyrsta smásagnasafnið mitt [Doris deyr] sem
ég ákvað að verða rithöfundur, fram að því var ég ekki viss, teiknaði, orti, bjó
til gjörninga, þýddi og alls konar. Ég gæti unnið að því öllu núna en þegar ég
byrjaði að skrifa smásögurnar fann ég pláss í sjálfri mér og frið og mig lang-
aði til að dvelja þar. Þá var ég í masternámi í myndlist í Montreal í Kanada
og vildi frekar skrifa í næði en sitja í skólastofu og ræða myndlist við fólk.
Hvort fannst þér skemmtilegra að vera barn eða unglingur?
Mér fannst hvorugt eitthvað skemmtilegt í sjálfu sér. Svo eru þetta lengstu
tímabil ævinnar þannig að það gekk á mjög miklu.
Varstu trúuð? Ertu trúuð?
Ég er mjög trúuð.
Líka þegar þú varst lítil?
Nei, ég er alin upp af trúleysingjum og hef líklega alltaf haft – það sem
pabbi kallar forna heilaskemmd og mamma kallaði auðvaldshyggju eitthvað
– trúarþörf. Ég var alltaf rosa upptekin af Jesú. Ég tilheyri ekki neinum trúar-
brögðum af því ég er ekki alin upp við það og veit ekki hvernig maður fer að
því að ganga í söfnuð og baka brauðkökur fyrir safnaðarstarfið en ég er opin
fyrir öllum uppástungum og það er ákveðin trú í sjálfu sér. Mér leiðist þegar
fólk telur sig vita nákvæmlega hvernig allt er, hvort sem það veit að Guð er
til eða ekki.
Ertu félagsvera, einfari?
Í grunninn er ég félagsvera en ég fæ ekki orku í kringum fólk, mér finnst
gaman með fólki og fólk hreyfir við mér en svo þarf ég frið til að jafna mig,
safna mér saman á milli félagslegra atrenna. Ég er sjálfri mér nóg og öfunda
stundum fólk sem fær orku af samneyti. Ég held að þannig fólk lendi í fleiru
og lifi kannski heilt yfir fjörugra lífi.
Varstu / ertu pabbastelpa? Mömmustelpa? Hvorugt?
Ég var mömmustelpa og líka mikil ömmustelpa.