Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Side 8
A r n d í s Þ ó r a r i n s d ó t t i r
8 TMM 2017 · 4
Já, það verður að vera skemmtilegt. Og fegurðin er ekki feimnismál. Það
er ekki væmni að gleðjast yfir veröldinni. Opnum faðminn. Njótum. Það
er eina leiðin til að gera þetta. Það er bannað að skrifa nema upptendraður.
Upptalningin er að klárast. Kennarinn okkar reyndi að rúma niðurstöður
áratugarannsóknarstarfa á sviði skáldskaparlistarinnar á einu misseri. Síðar
er misserið dregið saman í stuttan lista. Kennisetningarnar þurrkaðar,
vakúmpakkaðar, varðveittar. Kannski lítilfjörlegar að sjá, en búnar ein-
hverjum kynngikrafti, eins og skorpin telauf sem geta á andartaki kallað
fram angan liðinna sumra af fjarlægum slóðum.
Vonandi.
Kannski býr líka í þeim hugrekki. Stundi maður dveljandi lestur, rannsaki
heiminn með myndhverfingum og fagni hinu fagra öðlast maður kannski
innri vissu um það hver maður er. Og þá koðnar röddin varla niður í háls-
inum þegar maður dettur í lukkupottinn í borðherralottói veraldarinnar.
En það er eitt heilræði eftir. Eitt af þessum óyrtu, sem varð smám saman
ljóst í hvert sinn sem minnst var á höfund og Sigurður gat eftir andartaksum-
hugsun nefnt fæðingarár skáldsins, helsta samferðafólk þess og áhrifavalda.
Sagan skiptir máli. Samhengi hlutanna skiptir máli, röð atvika, ártöl, staðir.
Ef samhengi orsaka og afleiðinga á að verða lifandi þarf þetta allt að vera til
staðar í kollinum á manni – ekki bara í símanum, á Wikipediu eða í rykfall-
inni fermingargjöf.
Setjum þetta því á okkur, nú þegar blómkálssúpan er tilbúin, því þetta er
mikilvægt: Frávikið Sigurður Pálsson, maðurinn í skáldafrakkanum, fæddist
á Skinnastað árið 1948. Hann lést í Reykjavík árið 2017.