Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Side 9

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Side 9
TMM 2017 · 4 9 Kristín Ómarsdóttir Hnefi beitir heiðarlegra ofbeldi Viðtal við Kristínu Eiríksdóttur rithöfund Kristín Eiríksdóttir opnar dyr. Svo opnar hún aðrar dyr. Svo aðrar dyr. Svo aðrar dyr. Í dyragættinni opnar hún aðrar dyr og lokar mann inni. Svo gerist eitthvað. Svo hleypir hún manni út – úr Kjötbænum á baki jaxuxa. Þannig má lýsa áhrifunum sem bækur hennar geta veitt manni. Um tvítugt skrifaði Kristín fyrstu ljóðabókina, ímyndunaraflið kröftugt, myndheimurinn ríkur og ískyggilegur, brútal, kreisí, vingjarnlegur og ein- semdarlegur. Fyrstu bækurnar hennar eru sannkallaðar ljóðabombur, gos. Í fyrsta smásagnasafninu stýrir hún veðrunum öðruvísi – ég veit ekki hvort ætti að segja: jarðbundnar; yfirvegað, stælt. Kristín á jafn létt með að skrifa ljóð, leikrit og skáldsögur. Í haust kemur önnur skáldsaga Kristínar út Elín, ýmislegt. Í vetur frumflytur Útvarpsleikhúsið leikritið Fákafen. Kristín er menntuð í myndlist. Ljóðabækurnar sem út hafa komið hefur hún myndskreytt svo að teikningin rennur saman við orðin og öfugt og má fullyrða nær fullkomlega í yngstu ljóðabókinni Kok (2014) sem að mínu viti er einnig e.k. tónverk. Ég held að Kristín sé líka e.k. forsprakki kynslóðar – kynslóða – og veit þó ekkert um það nema að ég hef tekið eftir og heyrt að lesendum þykir hún tala fyrir sína hönd, tjá sig, sitt og sína (sýna). Ég þekki ekki sögu Nýhils og upp- hafstíma yngri og yngstu skáldanna, best ég spyrji hana líka útí ljóðatímann við upphaf þriðja árþúsundsins hérna í garðinum. Við sitjum undir styttu Jónasar Hallgrímssonar – hvar annars staðar í Reykjavík? Það er hlýr sumardagur, grasið er grænt, ég kom með teppi, Kristín með tvö mál ís-kaffi. *** Takk fyrir að koma í viðtal við mig fyrir Tímarit Máls og menningar Kristín Eiríksdóttir. Viltu segja mér hvar þú ert fædd og hvenær, hvað for- eldrar þínir heita, áttu systkini, hvað heita þau – ef þú kærir þig um að svara því – og hvar í röðinni ertu fædd og hvar ólstu upp? Ég heiti Kristín Eiríksdóttir og er fædd í Reykjavík 3. nóvember 1981. Mamma mín hét Ingibjörg Haraldsdóttir og pabbi minn heitir Eiríkur Guð-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.