Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Síða 22
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
22 TMM 2017 · 4
allir mestu mátar og auðvitað dýrkar leikskáldið ljóðskáldið. Eitt af því sem
mér finnst skemmtilegt við leikhússkrif er fyrsta persónan og búktalsvinkill-
inn. Að ljá fólki orð í munn. Svo finnst mér gefandi að finna takmarkanir
formsins, textans og sjá hvar næsta form, leikstjórn, leikur, sviðsmynda-
hönnun, dramatúrgía, hljóð, lýsing o.s.frv., tekur við og lífið heldur áfram.
Kannski meira eins og munn við munn heldur en búktal.
Þú varst að ljúka við nýja bók sem kemur út í haust.
Nýja bókin mín heitir Elín, ýmislegt – eins og stendur á kassa sem sögu-
konan, Elín, finnur í geymslu sem tilheyrir íbúð löngu látinnar ömmu. Hún
vissi ekki að þessi geymsla væri til og þorir ekki að líta ofan í kassann. Þetta
er svona skáldsaga um hvernig hugurinn reynir að kljást við heiminn, sem-
sagt hvaða skáldsaga sem er!
***
Ertu hugrökk?
Já.
Hvar annars staðar viltu búa? Sveit, staður, borg?
Smárri borg. Kannski í Antwerp sem þýðir að ég held handkast.
Ertu kvöldsvæf, næturhrafn?
Næturhrafn.
Ertu ævintýragjörn, nýjungagjörn?
Já.
Ertu ástsjúk?
Nei. Stundum.
Hver er uppáhaldsmálsverðurinn þinn?
Málsvörður?
Nei – máls-v E rðurinn þinn?
Miklu skemmtilegra að velja hver er uppáhaldsvörður tungumálsins.
Uppáhaldsmálsverðurinn minn er brasilískur matur.
Finnst þér gaman að laga mat, ertu góður kokkur?
Ég er mistækur kokkur. Stundum kemur kokkur og eldar í gegnum mig en
ég get ekki treyst á að hann komi. Hef lent í vanda.