Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Blaðsíða 37
R a u n s æ l í f s g l e ð i
TMM 2017 · 4 37
„Við hvað á ég þá að líkja mönnum þessarar kynslóðar? Hverju eru þeir líkir? Líkir
eru þeir börnum sem á torgi sitja og kallast á: Við lékum fyrir ykkur á flautu og ekki
vilduð þið dansa. Við sungum ykkur sorgarljóð og ekki vilduð þið gráta. Nú kom
Jóhannes skírari, át hvorki brauð né drakk vín, og þið segið: Hann hefur illan anda.
Og Mannssonurinn er kominn, etur og drekkur og þið segið: Hann er mathákur og
vínsvelgur, vinur tollheimtumanna og syndara! En öll börn spekinnar sjá og játa
hvar hún er að verki.“ (Lk 7. 31–35)
Lúther er í útleggingu sinni trúr framsetningu Prédik arans. Eftir hafa fjallað
í fyrri hlutanum (v.1–6) um vinnu og verk mannsins, snýr hann sér í seinni
hlutanum (v.7–10) að nauðsyn þess að njóta gæða lífsins. Hann varar strax í
upphafi við þeim hégóma, freistni og kröfu verkaréttlætingarsinna að hafna
ánægjuefnum lífsins fyrir sig en umfram allt fyrir aðra. Inntak raka slíkra
eru ætíð þau sömu, að veruleikinn sé fullur þverstæðna, óréttlætið mikið og
dauðinn skelfilegur sem allt verður að hverfa í skuggann af. Lúther svarar
þeim og segir: „Fyrst við verðum að lifa í þverstæðufullum heimi, þá er það
besta sem getum gert að vera ánægð og halda ró okkar. Við getum ekki hreyft
við þeirri stöðu og breytum engu með að láta áhyggjur éta okkur upp. Þær
eiga ekki að ríkja í hjörtum okkar, [við fylgjum ráði Prédik arans] „njóttu
brauðs og víns þíns“, sem er að við, vegna blessunar Guðs, eigum að njóta
ávaxta erfiðis okkar“.37 Menn eiga að leggja verk sín í hendur Guðs, gefa hjarta
sitt góðvild Guðs á vald og vera óhræddir að njóta lífsins og þeirrar hamingju
sem það hefur þó að geyma. Maðurinn á að gera sér dagamun, fara í betri föt
og halda hátíðir, til að ramma hversdagsleikann inn. Lúther segir: „Þú lifir
vissulega mitt í hégómleikanum, einmitt þess vegna skaltu njóta lífsins og
eyðilegðu það ekki fyrir þér með hneykslun og fjarlægðu sorgirnar úr hjarta
þínu. Þú getur ekki betur hæðst að heiminum en með því að hlæja, þegar
hann reiðist. Það á að vera þér nóg að eiga náðugan Guð. Því hvað er öll illska
heimsins í samanburði við mildi hans?“38 Vinnan á að vera á sínum stað og
henni á að sinna, en áhyggjurnar á ekki að rækta með ásökunum sem siða-
postular og fulltrúar þeirra leita að með logandi ljósi í fortíðinni eða komandi
framtíð. Bara til að geta ráðskast með meðbræður sína og systur. Menn eiga
ekki hlusta á þá, heldur leggja líf sitt og verk í hendur Guðs. Maðurinn á
að gangast við blessun Guðs, meðtaka það góða sem hann þó veitir. Og þá
greinum við að lifandi hundur í náð Guðs er sælli en dautt ljón í fangi verka-
réttlætingarinnar.
5. Niðurstaða
Lúther gefur á mörgum stöðum líkt og Prédik arinn góð ráð hvernig á að
sigrast á erfiðleikum lífsins með lífsgleðinni. Hann segir á einum stað að
þegar þunglyndi sækir að skuli menn grípa til lífsgleðinnar, borða vel og
drekka því djöfullinn eigi erfiðara með að glíma við þá sem eru með magann
fullan af góðum mat og höfuðið fullt af skemmtilegum sögum.39 Í þessu sam-