Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Page 47

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Page 47
X x x TMM 2017 · 4 47 Á heimleiðinni getur Janus ekki stillt sig um að minnast á það við mig hvað við systurnar eru ólíkar, en um leið rennur upp fyrir honum að hann gæti hafa sært mig með þessum samanburði. Ég meina þú svo hæglát og hún svona mannblendin, flýtir hann sér að bæta við og gjóar augunum til mín, athugar hvernig ég bregst við. En ég er vön þessu. Þetta hefur alltaf verið svona og ég reyni að útskýra það fyrir Janusi. Ég veit að við erum ekki líkar en ég er ekki afbrýðisöm þó hún sé svona glæsileg. Þú ættir bara að vita hvað það var oft gaman heima hjá okkur þegar Lilja bjó heima. Meira að segja mamma hló stundum. Ég saknaði systur minnar hræðilega þetta ár sem hún var í Reykjavík, hélt ég myndi deyja. Þó vissi ég að hún kæmi aftur. Já, auðvitað kom hún aftur. Og ég get ekki stillt mig um að brosa. Líklega er þetta í fyrsta skipti sem ég brosi til bróður míns sem horfir alvarlegur, næstum skelfdur á mig. Þú skilur, segi ég, Lilja getur aldrei farið frá okkur. Brosið er fast á vörunum, ég næ því ekki af. Það er alla vega hlýtt innan um útsaumuðu karlana sem prýða stofuna okkar mömmu og heima bíður líka kjötsúpan frá í gær, þykk og bragðmikil, full af gulrótum, kryddi og káli. Mamma eldar góða kjötsúpu, okkur hitnar og ég byrja strax að svitna. Eftir matinn setjumst við í stofuna. Nýr maður er að verða til á jómfrúarhvítum strammanum og við Janus fylgjumst með hreyfingum handarinnar sem stjórnar nálinni. Ekkert annað hreyfist á staðnum. Janusi bregður þegar hann kannast við augnsvipinn á myndinni og smeykur fikrar hann sig nær til að skoða  saumaskapinn, þar sem löng brún augnhár eru að myndast hvert af öðru við fölan vanga. Hann rýnir í strammann og ég horfi á vangasvipinn, sé bláa æð í gagnauganu tifa í takt við nálina sem borast inn í augnlokið og skilur eftir krossa sem eiga fyrir höndum að safna ryki hér hjá okkur. Liggur þér nokkuð á Janus minn? spyr mamma án þess að líta upp. Þú ert velkominn hér. Ég tek rútuna á morgun, segir Janus og fer upp í gamla herbergið hennar Lilju. Daginn eftir er vorið liðið. Skáldið veit hvað það syngur því það er aftur kominn vetur þegar við systkinin kveðjumst með köldu og lausu handabandi. Janus er svo kaldur á höndunum að þurr snjókornin sem fjúka í kringum okkur bráðna ekki einu sinni þegar þau lenda á handarbakinu. En bróðir minn er kátur þegar hann lyftir handleggnum og veifar út um glugga rútunnar. Í augnablik kippist hann við þegar tekur í saumanna á handleggnum en svo ypptir hann bara öxlum og hlær glaðlega. Þetta smásár er að verða gróið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.