Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Qupperneq 36
34
Reyðarff. Heilabólga: 2 tilfelli af encephalitis upp úr inflúenzu.
Annar sjúklingurinn dó á Seyðisfirði úr bráðaberklum. Hinn fór tii
Reykjavíkur og fékk fullan bata.
Meningitis acuta: í 2 héruðum er skráð heilahimnubólga, án þess
að getið sé, hvers eðlis hafi verið.
Seyðisff. Meningitis fékk 10 ára stúlka seint i desember. Virtist
prontosíl, bæði per os og inn í vöðva, bjarga sjúklingnum, sem náði
fullum bata.
Keflavíkur. Þar er skráð barn á 1. ári með meningitis acuta.
Pharyngitis acuta: I Siglufj. er getið um faraldur í jiíní: 4 sjúk-
lingar, jafnt af hvoru kyni.
Psittacosis: Grunur sá, er um getur í síðustu Heilbrigðisskýrslum,
að veiki þessi hefði stungið sér niður í Vestmannaeyjum, reyndist
hafa við rök að styðjast og' eins hitt, að hann ætti rætur að rekja til
smitunar frá fýlunga.
Húsavíkur. Ekki þori ég að fullyrða, að komið hafi fyrir tilfelli af
psittacosis í Grímsey, því að ég sá það ekki, og því miður enginn
læknir, en eftir lýsingu á sjúklingnum þykir mér það mjög sennilegt.
Konan hafði um það bil, er hún veiktist, reytt fíl. Úr þessu vona ég,
að ekki sé hætta á því, að Grímseyingar sýkist, því að nú er fýlatekju
hætt þar. Þótt mörgum þætti illt að missa fýlinn til matar, virða þeir
hættuna, sem af honum getur stafað, meira en matinn.
Vestmannaeyja. Psittacosis (viruspneumonia): Það er nú sannað
mál, að veiki þessi sj'kti hér 5 konur og 1 karlmann i septembermán-
aðarbyrjun. 1 síðustu ársskýrslu svaraði ég bréfi landlæknis, dags. 30.
nóv. 1938, viðvíkjandi lungnabólgufarsótt, sem undanfarin ár hefur
gert vart við sig í Færevjuin, og líkur bent til, að væri sams konar og
páfagaukapest, en fýlungi valdi þar smituninni. Ég spurðist fyrir hjá
eldra fólki, sem árum saman hafði fengizt við fýlungaveiðar og'
verkun hans, en eng'inn vissi neitt um þetta, og kvaðst enginn hafa
orðið var neinna veikinda á þeim, sem reyttu fýlungann eða mat-
bjuggu hann. Ég hafði grun um 1 tilfelli á konu i septemher 1938, en
hún reytti fýlunga 23. ágúst og veiktist upp úr mánaðamótum. Tel ég,
eftir þá reynslu, sem fékkst i haust, að það hafi verið psittacosis, og
verið gæti einnig um 2 tilfelli að ræða í septemberbyrjun 1937 og 1
tilfelli í september 1936, allt konur, og dóu 3 af þeim 4. Ég hef grafið
það upp, að allar þessar konur reyttu fýlunga og veiktust 10—12 dög-
um þar á eftir. Þar áður hef ég engan grun um veikina i héraðinu.
Veikin var illkynjuð lungnabólga, sem skreið eftir lungunum, og var
það staðfest með röntgenrannsókn í 2 framangreindum tilfellum, en
á henni er mest að byggja, hvað snertir kennsl á þessari illkynjuðu
veiki. Fýlungatekjan hófst á þessu ári 22. ágúst og stóð yfir í 3 daga,
fýllinn veiddur þá í bjargi og varpað i sjó, en tekinn fljótt upp aftur,
svo að hann verður ekki sjóblautur (þurrfýll). Síðast i ágúst er fýl-
unginn veiddur á sjónum með háf (flugfýll). Hér í héraðinu veiktust
5 konur og 1 karlmaður í septemberbyrjun, sem öll höfðu reytt fýl-
unga og matbúið hann 8—12 dögum áður. í júlí og ágúst var heilsu-
far með ágætum í héraðinu. Veiki þessi skall á eins og þruma úr
heiðskíru lofti. Allir, sem sýktust, reyttu fýlungana um sama leyli