Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Blaðsíða 104
102
verði, sem nú er kr. 1,75 pr. dag, en ekki mun hún hagnast á þeirri
sölu. Ljóslækninga hafa 26 manns notið, auk þeirra, er í sjúkrahús-
inu hafa dvalið. >
Þistilfj. Miðstöð til hitunar sett í sjúkraskýlið. Var með því ráðin
bót á vandræðum, sem hafa frá upphafi fylgt skýlinu, að í vissum
áttum hefur ekki verið unnt að hita það upp, vegna þess hve ofnar
hafa reykt. Járn var endurnýjað á þaki skýlisins til þess að fyrir-
byggja leka, sem þar hefur átt sér stað, en lekinn heldur áfram, þegar
úrkoman er af vissri átt. Fasta hjúkrunarstúlku hefur ekki tekizt að
fá fyrir það kaup, sem boðið er.
Seijðisfj. Á röntgenstofunni voru 16 sjúklingar myndaðir og 40
skyggningar gerðar á 25 sjúklingum (fyrir utan skyggningar berkla-
varnarstöðvarinnar). Ljósböð fengu um 50 sjúklingar, aðallega fram-
faralítil börn. Á sumrin er sólin notuð i stað ljósbaðanna og brýnt
fyrir fólki að notfæra sér hana.
Norðfj. Á sjúkrahúsinu hefur engin breyting orðið til hins betra.
Síðu. Mér láðist að geta þess í skýrslu 1938, að miðstöð var sett í
sjúkraskýlið og læknisbústaðinn í lok þess árs.
Rangár. Sjúkraskýlið starfaði eins og að undanförnu yfir vetrar-
inánuðina.
Eyrarbakka. Nú er svo komið, að í mínu ágæta héraði er ekki einu
sinni til „sjúkrahúsmál", hvað þá heldur sjúkrahús.
Grímsnes. Landlæknir veitti á árinu kr. 400,00 úr læknishéraðs-
sjóði Grímsneshéraðs til kaupa á hús- og hjúkrunargögnum í sjúkra-
herbergið í læknisbústaðnum.
Keflavíkur. SjúkraskýJi Rauðakross íslands í Sandgerði starfaði
frá 27. janúar til 11. maí. Forstöðukona var ungfrú Sigríður Bach-
mann. Hún skýrir svo frá: Heilsufar var yfirleitt ág'ætt. Kvefsótt sú,
er gekk síðara hluta vertíðar, kom harðast niður á skipverjum af
Austfjarðabátum. Lítið var um slæmar igerðir eða aðra kvilla. 11
karhnenn dvöldu í sjúkraskýlinu, mest vegna kvefsóttar. Legudagar
52 alls. Hjúkrunarkonan gerði 612 aðgerðir og fór 78 vitjanir í sjó-
búðir og hús í nágrenninu. Almenningsböð sjúkraskýlisins voru mjög
vel sótt af sjómönnum. Auk sjómannanna voru skólabörnin í Sand-
gerði, 67 að tölu, böðuð einu sinni í viku, og hafði hjúkrunarkonan
nokkurt eftirlit með hreinlæti barnanna, meðan vertíðin stóð yfir.
B, Sjúkrahjúkrun. Heilsuverndun. Sjúkrasamlög.
H júkrunarfélög.
1. Hjúkranarfélagið Likn í Reykjavík gerir svofellda grein fyrir
störfum sínum á árinu:
Arið 1939 hafði hjúkrunarfélagið Líkn 6 hjúkrunarkonur i fastri
þjónustu sinni. Störfum þeirra var skipt þannig, að 3 þeirra unnu við
heimilisvitjanahjúkrun, 2 við berklavarnarstöðina i Reykjavík og 1
við ungbarnavernd Líknar. Stöðvarhjúkrunarkonurnar höfðu hjúkr-
unarkvöldvakt í réttu hlutfalli við heiinilishjúkrunarkonurnar, og 1
þeirra hjálpaði til í sumarleyfum þeirra. Farið var í 12231 sjúkravitj-
un, þar af var 10301 sjúkrasamlagsvitjun. Þær vöktu í 4 nætur
og höfðu 4 heilar dagvaktir (sjá síðar um heilsuverndarstöð Reykja-