Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Qupperneq 94
92
femoris. 50 ára kona varð fyrir árás af amerískum setuliðsmanni.
sem veitti henni mörg högg á höfuðið, svo að sauma varð saman -S
skurði. Konan náði sér alveg. Smá brunasár og minna háttar meiðsli
koma alltaf fyrir.
Norðfj. Fract. Collesi 2, antibrachii (green-stick) 1, claviculae
(green-stick) 1, costae 4, colli femoris 1, mandibulae dupl. 1. Fract.
colli femoris vildi svo til, að á 1. desemberskemmtun var ruðzt á VI
árs gamlan mann í stiga, svo að hann féll og kom á eina tröppuna
með mjöðmina. Kona var að stilla til friðar milli manns síns og
annars manns, er sá síðari ætlaði að koma höggi á hinn, en miðunin
var ekki betri en svo, að það lenti á vanga konunnar. Nokkru áður
hafði farið fram tannhreinsun á henni, svo að kjálkinn var orðinir
veikur. Að morgni dags var komið til mín með sofandi 1 árs barn,
sem sopið hafði á percain-glýseríni. Það hafði haft hlustarverk um
nóttina og lyfi þessu verið dreypt í eyrað, en glasið verið skilið eftu'
á náttborðinu við höfðalagið. Barnið vaknaði snemma, skreið yfn'
móður sína, án þess að hún vaknaði fyllilega við, þreif glasið og setti
á munn sér. Þá mun móðirin hafa rankað við sér. Eftir rækilega
magaskolun lifnaði barnið við og náði sér.
Fáskrúðsfj. Slysfarir með minnsta móti á árinu, að undan teknum
minna háttar skurðsárum og krókstungum, sem alltaf er talsvert af-
Berufj. Engin meira háttar slys. Vulnera 10, fract. fibulae 1, ulrnve
1, phalangis 1, combustio 1, contusiones 3.
Hornafj. Engin alvarleg slys síðara hluta ársins, en 1 dauðasiys á
fyrra helmingi þess. Ambustiones 2, contusiones 7, corp. aliena oculi 7,
aliis locis 5, distorsio 1, fract. costae 1, malleoli 1, torticollis trauma-
tica 1, vuln. contusa 0, incisa 5, punctum 1, sclopetarium pedis
sin. 1 (var að skjóta kind, og kúlan hljóp í gegnum höfuð kindarinnar
og niður í vinstri rist skotmannsins og sat þar föst. Kúlan náðist i
staðdeyfingu).
Síðu. Lítið um slys. I karlmaður viðbeinsbrotnaði. Var að toga í
kaðál, sem slitnaði. Greri fljótt og vel með extensionsumbúðum.
Mýrdals. Fract. coili femoris 1, gömul kona, femoris complicata á
barni og cruris á sama barni nokltru síðar.
Vestmannaeijja. Á þjóðhátíð, sem Vestmannaeyingar hafa haldið
því nær óslitið síðan árið 1874 sér og öðruin til glaðværðar i ágiíst-
mánuði, báru þær hörmungar að höndum, að 8 karlmenn og 1 kona
glöptust á að drekka sjórekið methanol, með þeim afleiðingum, að
þau dóu öíl. Auk þeirra veiktust meira og minna um 15 karlmenn,
og enn fieiri lögðu sér eitrið til munns, en leyndu því, þar til hætta
var afstaðin, bæði aðkomufólk og heimilisfast hér. Einn þeirra karla,
um tvítugt, sein komust í opinn dauðann, lifði af með þeiiu geigvæn-
tegu afleiðinguni, að liann er alveg sjónlaus á báðum augum. Lög-
reglurannsókn var þegar í byrjun hafin í málinu. Dómur undirréttar
ekki fallin, þegar þetta er skráð. Fract. malleoli: 16 ára piltur, var
að æfa stökk og snerist á ökla og brotnaði; patellae dextrae: 16 ára
piltur skall á steinnibbu, saumuð sainan hnéskelin á sjúkrahúsinu;
colli femor. sin.: 76 ára kona skall á hálku; transtrochanterica: 71
árs karlmaður skall á hálku; humeri sin.: 25 ára sjómaður lenti á