Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Blaðsíða 115
113
Iseli stundum orðið þess valdandi, að hin skemmda vara hélt áfram
að vera til framboðs og var þá jafnvel uppseld, þegar úrskurður kom.
Vestmannaeyja. Matvælaeftirlit minna en þyrfti. Enginn heilbrigðis-
1 ulltriii á bæjarins vegum. Ég ætlast til, að hjúkrunarkona væntan-
iegrar barnaheilsuverndarstöðvar gæti haft eftirlit með mjólkursölu,
uiatvælasölu o. f 1., og verður hún látin kynna sér sérstaklega þessi mál.
E. Manneldisráð ríkisins.
Á árinu er lokið við að prenta rit dr. Júlíusar Sigurjónssonar:
Mataræði og heilsufar á íslandi, þar sem gerð er grein fyrir mann-
eldisrannsóknum þeim, er ráðið hafði haft með höndum undanfarin
fjögur ár. Skilaði ráðið af sér störfum með því að senda dómsmála-
i'áðuneytinu nefnt rit og lét því fylg'ja svo látandi bréf, dags. 2. des-
eniber 1943:
,,Með bréfi dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, dags. 5. júní 1939,
var skipuð nefnd — manneldisráð — til þess að sjá um framkvæmd
nokkurra rannsókna á matarræði þjóðarinnar samkvæmt áður gerðri
áætlun. Hefur ráðið nú, með samþykki ríkisstjórnarinnar, gefið út
i'it það um árangur og niðurstöður þessara rannsókna, sem hér með
fylgir.
Til yfirlits yfir helztu niðurstöður rannsóknanna má vísa til niður-
iagsorða ritsins, bls. 105—106. Eins og' þar er greint frá, virðist svo,
að algengustu ágallar matarræðis hér á landi séu þeir, að minna sé af
ýmsum vítamínum í daglegu fæði manna en æskilegt er talið, og á
þetta einkum við um C- og að líkindum D-vítamín.
Gef-ur þetta tilefni til athugunar, hverjar almennar ráðstafanir
væri tiltækilegt að hefja til úrbóta, og vill ráðið í því sambandi eink-
Um benda á það, sem hér fer á eftir:
1. Með tilliti til C-vítamíns ber að stefna að stóraukinni framleiðslu
grænmetis og ávaxta, þeirra tegunda, er líkur eru til, að rækt-
aðar verði hér á landi án óhæfilegs tilkostnaðar, enda sé jafnframt
aflað vitneskju um það með tilraunum og rannsóknum, í hverj-
um tegundum sé mest C-vítamín og' hverjar geymsluaðferðir
henti bezt til varðveizlu þess. Ivartöfluneyzla landsmanna þyrfti
og að aukast allverulega frá þvi, sem nú er. Meðan þessu er ekki
komið í viðunandi horf — en viðbúið er, að það muni taka all-
langan tíma — er sérstök ástæða til að greiða sem mest fyrir
innflutningi ferskra ávaxta, einkum þeirra tegunda, sem auðug-
astar eru af C-vítamíni, svo sem sítrónum, appelsínum og öðrum
Citrustegundum, enda sé jafnframt hlutazt til um, að unnt sé að
selja ávextina við sem vægustu verði og skömmtun tekin upp,
líkt og á sér stað um aðrar erlendar neyzluvörur, til þess að
tryggja almenna dreifingu þeirra.
2. Greiðasta leiðin til tryggingar gegn skorti A- og D-vítamína er
að neyta daglega þorskalifrar eða lýsis, og er þess einkum þörf
börnum og barnshafandi konum. Ráðið telur mjög æskilegt, að
teknar verði upp reg'lubundnar lýsisgjafir í öllum barna- og ung-
lingaskólum landsins, jafnt í sveitum sem kaupstöðum. En frá
skólum og heilsuverndarstöðvum, þar sem þær eru, mætti og
15