Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Síða 117
brigðisstjórninni lil ráðuneytis um ýmis mál, er varða manneldi, svo
sem víðast tíðkast erlendis. Mundi það m. a. vera með í ráðum Um til-
högun mataræðis 1 sjúkrahúsum og öðrum opinberum stofnunum og
gera tillögur um frekari rannsóknir varðandi manneldi almennt. Vill
ráðið leggja áherzlu á, að slíkum rannsóknum sé haidið áfram, því að
svo má líta á, að með þeim ransóknum, sem þegar hafa verið gerðar,
sé aðeins stigið fyrsta skrefið tii öflunar nauðsynlegrar þekkingar á
matarræði þjóðarinnar, kostuin þess og gölium, en hér má heita, að
um ótæmandi rannsóknarefni sé að ræða.“
F. Sumardvöl kaupstaðarbarna í sveitum.
Héraðslæknar víkja ekki sérstaklega að þessari starfsemi, en í
skýrslum Rauðakross íslands er þess getið, að á vegum lians hafi
verið rekin 8 sumardvalarheimili í sveitum og samtals vistuð á þeim
457 börn. Auk þess ráðstafaði Rauðakrossinn í samráði við foreldra
og aðstandendur um 100 börnum til sumarvistar á sveitaheimilum.
4. Húsakynni. Þrifnaður.
Þrátt fyrir áframhaldandi miklar byggingarframkvæmdir í Reykja-
vík og á öðrum stöðum, sem verða fyrir mestu aðstreymi fólks, fuli-
nægja þær hvergi nærri þörfinni, og eru húsnæðismálin sem fyrr
mikið vandræðamál. Er hvort tveggja, að fjöldi fólks á fyrr greindum
stöðum er beinlínis husnæðislaust, og í annan stað er stórum ábóta
vant því húsnæði, sein fóik býr við, m. a. vegna skorts á viðhaldi, sem
nijög almennt hefur verið vanrækt hernámsárin. Á það ekki sízt við
um leiguhúsnæði í kaupstöðunum, og mun húsaleigulöggjöfin því
miður eiga sinn þátt í þvi.
Læknar láta þessa getið:
Rvik. Ekki hægt að segja, að húsnæðisvandræðin og ástandið í hús-
næðismálum hafa batnað á þessu ári, nema síður sé. Miklar og
sífelldar umkvartanir hafa borizt mér, og hef ég gefið 33 vottorð á
árinu viðvíkjandi ófullnægjandi eða óhollu húsnæði. Þetta er þó alls
enginn mælikvarði á það mikla ófremdarástand, sem í húsnæðismál-
unum ríkir, né heldur á það, hve mikið er af óhæfum og ofsetmun
íbúðum, því að allur fjöldinn, og það oft einmitt þeir, sem bágast eiga,
leita aldrei til mín, vegna þess að reynslan sýnir, og þeir vita það, að
engar úrbætur er hægt að fá, hversu slæm sem aðbúðin er. Og svo
hitt, að margir þykjast góðir, ef þeir fá þak yfir höfuðið, þó að það
geti ekki talizt mannabústaðir, og þora síðan ekki að hreyfa þeim mál-
um af ótta við, að verra kunni að taka við.
Hafnarfí. Reist voru 13 íbúðarhús á árinu með 19 íbúðum, og kost-
uðu þau samtals eina milljón króna. Breyting var gerð á 27 gömlum
íbúðarhúsum, og fengust við það 6 nýjar íbúðir.
Skipaskaga. A árinu hafin bygging á 7 íbúðarhúsum og iokið við
smíði nokkurra húsa frá fyrra ári. 2 íbúðarhús stækkuð og byrjað á
slækkun og endurbótum á gistihúsi bæjarins. Öll nýjustu húsin stein-
liús. Húsnæðisekla í kaupstaðnum. Vatnsveita komin á fyrir bæinn.
Vatnið tekið úr Berjadalsá í vatnsgeymi uppi undir Akrafjalli og