Hugur - 01.01.2018, Side 111
Hugur | 29. ár, 2018 | s. 111–127
Sigurður Kristinsson
Eru stjórnmál í eðli sínu ósiðleg?
Um greiningu Páls Skúlasonar á siðferðisvanda
íslenskra stjórnmála1
Undanfarinn áratug, eða frá efnahagshruninu 2008, hefur traust á stjórnmálum
og siðferði stjórnmálamanna fengið aukið vægi í íslenskri þjóðmálaumræðu. Í
samræmi við ábendingar í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis2 hafa til dæmis
verið samþykktar siðareglur fyrir Alþingismenn, ráðherra, starfsfólk Stjórnarráðs
Íslands og kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum.3 Traust á Alþingi, sem hrapaði við
efnahagshrunið úr 42% í 13% samkvæmt könnun Gallups, hefur þó ekki endur-
heimst nema að hluta síðan (29% í febrúar 2018)4 og ríkisstjórnir hafa fallið 2016
og 2017 í kjölfar ásakana um siðferðisbrest ráðherra. Aukið vægi málefnisins kem-
ur meðal annars fram í því að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar sem tók við
völdum í árslok 2017 heitir hún því að beita sér fyrir því að efla traust á stjórnmál-
um og stjórnsýslu.5
Dvínandi traust á stjórnmálamönnum er þó ekki séríslenskt vandamál. Sam-
kvæmt skýrslu OECD frá 2017 minnkaði traust á stjórnvöldum á alþjóðavísu frá
2007 til 2015, einkum meðal lægri tekjuhópa.6 Er það talið tengjast efnahagsþró-
un, reiði vegna spillingar, skattsvika, ítaka sérhagsmuna í stjórnmálunum og van-
máttar þeirra gagnvart alþjóðlegri vá á borð við hryðjuverk og loftslagsbreytingar.
Í skýrslunni kemur fram að traust á stjórnvöldum velti annars vegar á því hvernig
fólk metur hæfni þeirra og dómgreind og hins vegar hvaða gildismat og ásetn-
1 Fyrstu drög þessarar greinar voru flutt sem erindi á ráðstefnunni Hugsun og veruleiki: Ráðstefna
um heimspeki Páls Skúlasonar, í Háskóla Íslands, 27.–28. maí 2016. Ég þakka ritrýni og ritstjóra
Hugar fyrir afar gagnlegar ábendingar við vinnslu greinarinnar.
2 Vilhjálmur Árnason, Salvör Nordal og Kristín Ástgeirsdóttir 2010: 152.
3 Siðareglur Alþingismanna e.d., Siðareglur ráðherra e.d., Siðareglur fyrir starfsfólk stjórnarráðsins
e.d., Siðareglur kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum e.d.
4 Gallup 2018.
5 Stjórnarráð Íslands 2017.
6 OECD 2017.
Hugur 2018meðoverride.indd 111 24-Jul-18 12:21:27