Úrval - 01.02.1947, Blaðsíða 44
42
tJRVAL
skapa alþjóðlegan mælikvarða.
Hann hefir mælt með og stuðl-
að að heiðarlegri málamiðlun og
samvinnu milli fjandsamlegra
stjórnmálaflokka í ættlandi
sínu, og hann mun keppa að
sams konar málamiðlun og
samvinnu milli hinna tveggja
fjandsamlegu aðila á vettvangi
alþjóðamála. Ef í skerst, mun
hann hvergi hika. Það er langt
síðan hannn hefir kjörið sitt
hlutskipti.
Meðan nokkrir möguleikar
eru til að varðveita friðinn, svo
að mannlegri virðingu sé ekki
misboðið, mun Spaak seint
verða þreyttur á að reyna að
hagnýta þau tækifæri, er tiL'
þess bjóðast.
★ ★ *
Oft er gott sem gamlir kveða.
Sextíu og fjögur af hundrað mestu afrekum heimsins voru
unnin af mönnum á aldrinum 45 til 65 ára. En látið ekki
hugfallast þó þið séuð komin fram yfir þennan aldur, því menn
á aldrinum 70 til 80 ára hafa unnið tíu af þessum hundrað af-
rekum.
— Magazine Digest.
★
Þessi börn.
Faðir Maríu litlu vildi ekki verða við bón hennar og fannst
henni það í meira lagi ósanngjamt.
Um kvöldið bað hún bænir sínar að vanda og endaði þær á
þessa lund: „Og góður Guð, láttu ekki hann pabba eignast fleiri
börn, því hann kann ekki að ala upp böm.“
★
AUi litli var að koma úr afmæhsboði og móðir hans sagði við
hann:
„Jæja, Alli minn, er það nú alveg rétt að þú hafir ekki beðið
um meira en þér var boðið?"
„Já, alveg rétt, mamma mín. Ég bað bara frúna að láta mig
fá uppskriftina að kökunum, svo þú gætir bakað eins, — og þá.
var mér boðið meira?“