Úrval - 01.02.1947, Blaðsíða 14
12
tfRVAL
Hann var af góðu fólki kora-
inn, iðinn og naut álits í hern-
um. Hann var harðfylginn eins
og bolabítur og hestamaður
ágætur. Þetta hljómar ekki illa,
en sambúðin við hann var óþol-
andi, sagði Anita.
Hún fæddi fyrsta barn sitt
rétt innan við tvítugt, og tveim
árum síðar annað. Fleiri börn
átti hún ekki. Maður hennar var
leiðinlegur. Honum var sama
um hana. Hann beitti hana að
vísu ekki ofbeldi, en fór með
hana eins og fíngert dýr. Til
þess að gera illt verra, lenti
hann í skuldabasli og gerði sig
að öreiga með f járhættuspili og
öðru. Auk þess olli hann sér
aukinnar vansæradar með því að
draga sér opinbert fé, en það
komst upp.
— Þú fannst hár í súpunni,
skrifaði ég Anitu.
— Ekki eitt hár, heila fléttu,
svaraði hún. Upp úr þessu fór
hún að fá sér elskhuga. Hún var
ung og grannvaxin, og henni
datt ekki í hug að bíða þess að
verða gömul og ljót í hinni
skrautlegu íbúð sinni í Berlín.
Maður hennar var liðsforingi í
úrvalsherdeild. Anita var töfr-
andi fögur. Hann var stoltur af
að kynna hana fyrir vinum sín-
um. Auk þess átti hún ættingja
í Berlín, sem umgengust háttsett
fyrirfólk. Svo fór hún að fá sér
elskhuga.
Anita er blátt áfram, dálítið
stolt og bregður fyrir sig góð-
látlegri lialdhæðni. Hún er há
og hraust, augu hennar eru brún
og full af fyrirlitningu, og hún
hefir mjúkan, brúnan litarhátt,
sem fer vel við svart hárið.
Loks fór hún að elska mig
dálítið. Sál hennar er óspillt —
ég held næstum að hún hafi
ungmeyjarsál. Henni gremst
sjálfsagt, að hún hefir aldrei
elskað almennilega. Hún hefir
aldrei borið reglulega virðingu
fyrir nokkrum manni. Og síð-
ustu tíu dagana hefir hún verið
hérna hjá mér í Tyrol. Ég elska
hana og ég er ekki ánægður með
sjálfan mig. Ef til vill bíð ég
líka ósigur.
— Hefirðu aldrei elskað
mennina þína? spurði ég.
— Ég elskaði þá — en ég
stakk þeim öllum í vasann,
sagði hún, og það var vottur af
óánægju í röddinni. Hún yppti
öxlum við alvarlegu augnaráði
mínu.
Ég lá í rúminu og var að velta
því fyrir mér, hvort ég myndí
lenda í vasa hennar ásamt