Úrval - 01.02.1947, Blaðsíða 85
ERU LOFTFÖR URELT
.83
heppnaðist flugið. Samt höfðu
mörg hundruð manna og mikið
af pósti og flutningi verið flutt
yfir hafið í loftskipum, án þess
að mikið væri um það rætt eða
slys kæmu fyrir — jafnvel áður
en Lindberg fór hina frægu
flugferð sína frá vestri til aust-
urs.
Engum mun koma til hugar
að halda því fram, að loftskip
geti keppt við f lugvélina á henn-
ar sviði, því að hraði þessara.
farartækja verður aldrei sam-
bærilegur. Það mun ávalt verða
til fólk, sem þarf að komast á
áfangastað á sem stytztum tíma,
og þá kemur flugvélin í góðar
þarfir. En svo eru aðrir ferða-
menn, sem meta þægmdin meira
en hraðann, og fyrir þá er loft-
skipið ákjósanlegasta farar-
tækið.
Byggingarkostnaður loftskipa
ætti ekki að verða óviðráðan-
legur á þessari öld tækninnar —
þegar jafnvel stærri mannvirki
en loftskip eru byggð. Fyrr eða
seinna verður loftskipið gróða-
vænlegt fyrirtæki, og nýjar til-
raunir með orkugjafa og efní
munu gera það að drottningu
loftsins.
OO^CO
Faðirinn lagði einu sinni þetta dæmi fyrir Dóru litlu dóttur
sína sex ára gamla: „Það sátu fjórir fuglar á grein. Maður kom
og skaut einn. Hve margir voru eftir?“ „Þrír, auðvitað", svar-
aði sú litla. „Nei, góða, enginn. Hinir urðu hræddir og flugu burt“.
„Nú, svoleiðis. — En heyrðu pahbi, einu sinni voru fjórir
fuglar á grein og svo kom maður og skaut einn og hvað margir
voru þá eftir?"
„Nú, þetta er alveg eins“.
„Nei, góði, það voru þrír eftir því hinir urðu ekkert hræddir
og flugu ekki burt“.
★
Gunnar litli var átta ára gamall og hafði faðir hans ekki vilj-
að láta skira hann. Eitt sinn, þegar leikfélagar hans voru að
striða honum með þessu, svaraði hann: „Það er nú ekki mikið.
Hann Jesús var orðinn þrjátiu ára þegar hann var skírður“.