Úrval - 01.06.1962, Page 37
AÐ KOMA í VEG FYRIR SJÁLFSMORÐ
45
átt sínar orsakir í því, að konunni
er sifellt að aukast ábyrgð og
frelsi, og þar með leggst á hana
i æ rikara mæli sú kvöð að standa
ein. Kona nítjándu aldarinnar átti
síður yfir höfði sér einangrun og
einmanaleika. Fjölskylduböndin
voru traustari i gamla daga, og
ógifta frænkan hafði sínu hlut-
verki að gegna.
Hvaða afl er það, sem kemur
fólki til að taka jafnhörmulega á-
kvörðun og að ráða sér bana?
Við skulum athuga nokkur dæmi
til að glöggva okkur á þessu:
Mary S. er ung frammistöðu-
stúlka og vinnur i stórri borg
fjarri heimili sinu. Hún er í tygj-
um við ungan pilt, og þegar hún
tjáir honum, að hún sé orðin van-
fær eftir hann, bregzt hann ó-
kvæða við og ásakar hana um að
vilja þvinga sig til að kvænast
sér, og þetta endar með því, að
hann snýr við henni bakinu.
Mary á ekki neinn að til að snúa
sér til. Hún er dauðhrædd við að
hverfa aftur til foreldra sinna,
sem eru mjög ströng og gamal-
dags. í örvæntingu sinni' tekur
hún inn eitur.
Walter J. er hátt á fimmtugs-
aldri, kvæntur og á þrjú börn.
Hann fyllist áhyggjum og kvíða
vegna ábyrgðar sinnar sem úti-
bússtjóri vátryggingarfélags, en
við þeirri stöðu hafði hann tek-
ið fyrir tveim árum. Að læknis-
ráði tók hann sér stutt frí, en það
varð einungis til að auka á þung-
lyndi hans, því nú gafst honum
meiri tími en áður til að hugsa
um ábyrgð sína. Eftir tveggja
vikna misheppnaða dvöl á bað-
stað einum með konu sinni hurfu
þau hjónin heim í leiðu skapi.
Morguninn eftir heimkomuna
var Walters saknað. Lík hans
fannst á nálægum akri, og var
byssa við hlið þess.
Arthur P., gamall maður á eft-
irlaunum, bjó einn síns liðs eftir
að hafa misst konu sína fyrir ári
síðan. Hann var farinn að sjá
illa og þjáðist oft af gigt. Hann
svifti sig lífinu með því að opna
fyrir gasið.
Enda þótt dæmin um Mary og
Arthur gamla séu ólík, eiga þau
eitt sameiginlegt: Bæði voru þau
1 óþægilegri aðstöðu og kviðu
framtíðinni og gátu ekki snúið
sér til neins nákomins í erfið-
leikum sinum. Enginn var til
að hughreysta þau og sýna þeim
samúð; öllum stóð á sama um,
hvernig þeim reiddi af.
Allar skýrslur sýna, að ein-
manaleiki stuðlar mjög að sjálfs-
morðum. Fólk, sem vantar per-
sónuleg sambönd, getur verið á-
takanlega einmana, og það dregur
sízt úr einmanatilfinningunni að
eiga heima í margmenni og hafa