Úrval - 01.05.1968, Page 28
26
ÚRVAL
á. að náið samband sé milli sól-
bletta (sem koma með reglubundnu
millibili) og farsótta og aukningar
á taugasjúkdómum og veikindum í
æðum hjartans.
Lengi vel var þessu tekið með
salti. Samt kom það á daginn að
athuganir hans og annarra for-
göngumanna á þessu sviði, stóðust
allar. Loks kom að því að enginn
treysti sér til að neita svo augljós-
um staðreyndum.
Árið 1930 hafði þrem vísinda-
mönnunum M. Faure, G. Sardou og
J. Vallot (franskir) tekizt að sýna
fram á það svo engum mótmælum
varð við komið, að það gerðist sam-
tímis í 84 skipti af hundrað, að
sólblettir komu fram á sólu um
miðbik hennar og að sjúklingum
versnaði eða urðu bráðkvaddir.
Þeir gengust fyrir því að alþjóð-
legri stofnun til rannsókna á geisl-
un frá sólu, geimgeislun og jarð-
geislun, var komið á fót. Chizhev-
sky var í stjórn þessarar sofnunar
frá 1931 til 1940.
Á öndverðum fjórða tug tuttug-
ustu aldar var það sem P. I. Kurk-
in, sovézkur læknir, gaf út skýrsl-
ur um uppgötvanir sínar um hjart-
veiki og blæðingar á heila. Þær
sýndu það Ijóslega, að þetta gerðist
einkum þegar sólin var alsett blett-
um, og studdi hann þetta mörgum
dæmum.
Nú hófust um þetta kappræður
og sýndist sitt hverjum, og sumir
voru svo æstir að þeir kinokuðu sér
ekki við að stimpla prófessor Chiz-
hevsky loddara og lygara — án til-
lits til þess að hann hafði þá þegar